Bæjarráð, fundur 654
16. mars 2020, kl. 08:30 til 10:45, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Gunnar Jónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 288 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.
Fundargerð bæjarráðs frá 16. mars staðfestar með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Beiðni um sameiginlega tilnefningu sveitarfélaga í hreindýraráð
Mál 2003066 Allur ferill málsins
Framlagt erindi Umhverfis- og auðlindaráðuneytisins um skipan sameiginlegs fulltrúa sveitarfélaganna á Austurlandi.
Bæjarráð felur stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi að tilnefna fulltrúa í ráðið. Jafnframt er Fjarðabyggð tilbúin til að tilnefna fulltrúa.
-
2. Reglugerð nr. 15/1949 um Rafveitu Reyðarfjarðar - brottnám
Mál 2003050 Allur ferill málsins
Vegna sölu á dreifikerfi Rafveitu Reyðarfjarðar til RARIK fylgir með í sölunni sérleyfi til reksturs dreifikerfis.
Bæjarráð samþykkir því að felld verði úr gildi reglugerð um Rafveitu Reyðarfjarðar frá árinu 1949 og vísar til bæjarstjórnar staðfestingu þess efnis.
-
3. Málefni Dalahallarinnar ehf.
Mál 2002015 Allur ferill málsins
Á 650. fundi bæjarráðs sem haldinn var þann 10. febrúar síðastliðin var framlagt sameiginlegt bréf stjórna Hestamannafélagsins Blæs og Dalahallarinnar þar sem þær óskuðu eftir fundi með fulltrúum sveitarfélagsins. Bæjarstjóri ásamt fulltrúum bæjarráðs hafa fundað með sameiginlegum stjórnum Hestamannafélagsins Blæs og Dalahallarinnar ehf.
Bæjarráð samþykkir að gera áframhaldandi rekstrarsamning við Hestamannafélagið Blæ vegna reksturs hallarinnar að fjárhæð 3,4 m.kr. til þriggja ára. Með samningi verði félagsþjónustu Fjarðabyggðar veitt afnot að höllinni ef hún hefur not fyrir hana. Útgjöldum umfram fjárhagsáætlun mætt af liðnum óráðstafað 21-690 á árinu.
-
4. Ósk um samstarf - Krabbameinsfélagið
Mál 2003076 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Krabbameinsfélags Íslands þar sem kynnt eru drög að samkomulagi um eflingu forvarna og þjónustu við fólk með krabbamein á Austurlandi. Krabbameinsfélag Íslands mun kosta starfsmann fyrir fjórðunginn sem mun veita þjónustu á heilsugæslustöðvum Heilbrigðisstofnunar Austurlands.
Bæjarráð þakkar erindið og fagnar framtaki félagsins. Fjarðabyggð styrkir nú þegar Krabbameinsfélag Austfjarða sem er aðildarfélag að Krabbameinsfélagi Íslands með styrk sem á að nýtast starfseminni.
-
5. Gjaldskrá sund- og líkamsræktarkorta
Mál 2003007 Allur ferill málsins
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að breytingu á gjaldskrá líkamsrækta- og sundkorta í Fjarðabyggð. Tillagan gerir ráð fyrir að inneign á 10 tíma kortum falli niður eftir fjögur ár en ekki tvö sem áður var.
Bæjarráð samþykkir tillögu íþrótta- og tómstundanefndar.
-
6. Akstursstyrkir vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna
Mál 2002063 Allur ferill málsins
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til kynningar í bæjarráði drögum að reglum um akstursstyrki barna vegna íþrótta- og tómstundaiðkunar.
Bæjarráð vísar málinu til íþrótta- og tómstundanefndar og leggur til hún feli íþrótta- og frístundastjóra og fjármálastjóra að kostnaðargreina verkefnið betur og taka mið af frístundarútu. Jafnframt að hafa samráð við foreldra barna í Breiðdal og á Stöðvarfirði.
-
7. Viðbragðsáætlun Fjarðabyggðar vegna smitsjúkdóma
Mál 2003092 Allur ferill málsins
Framlögð viðbragðsáætlun Fjarðabyggðar vegna smitsjúkdóma. Unnið er í náinni samvinnu við almannavarnir vegna viðbragða í starfseminni og verður upplýst á heimasíðu Fjarðabyggðar og facebook um ráðstafanir þegar grípa þarf til þeirra.
Viðbragðsáætlun samþykkt.
Farið yfir ráðstafanir og viðbrögð við samkomubanni sem hefur áhrif á skólastarf sbr. leiðbeiningar sóttvarnarlæknis og reglugerðir sem gefnar hafa verið út því tengdu. Sveitarfélagið er vel í stakk búið til að takast á við ástandið eins og staðan er og unnið verður áfram eftir fyrirmælum yfirvalda.
-
8. Jafnréttisstefna 2019-2023
Mál 1910037 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsmálanefnd til umfjöllunar bæjarráðs minnisblaði félagsmálastjóra um stöðu jafnréttisáætlunar Fjarðabyggðar 2019-2023. Staða verkþátta er að jafnlaunavottun sveitarfélagsins er að ljúka og samantekt á hlutfalli kynja í nefndum, ráðum og stjórnum Fjarðabyggðar er lokið. Að meðaltali skiptast nefndarmenn í fastanefndum og bæjarráði þannig að karlar eru 49,3% og konur 50,7%, og hlutfall formanna er jafnt eftir kynjum en í undirnefndum, ráðum og stjórnum eru 80% formanna karlar en í nefndunum eru karlar að meðaltali 57,4% og konur 42,6%. Vísað til bæjarráðs til meðferðar skv. lið 2.1 II kafla jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar 2019-2023.
Kynnt í bæjarráði og vísað til bæjarstjórnar.
-
9. Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 2020
Mál 2003030 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsmálanefnd til afgreiðslu bæjarráðs tillögu að breyttum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning ásamt minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Um lítilsháttar breytingar er að ræða auk uppfærslu á upphæðum og tekjuviðmiðum.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.
-
10. Boðun XXXV. landsþing sambandsins 26.mars 2020
Mál 2001166 Allur ferill málsins
Framlagður til kynningar tölvupóstur frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga en í ljósi aðstæðna hefur stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga tekið þá ákvörðun að fresta landsþingi sambandsins sem halda átti 26. mars nk. Tímasetning ákveðin síðar. Jafnframt er aðalfundi Lánasjóði íslenskra sveitarfélaga frestað ótímabundið.
-
11. Barnvæn sveitarfélög - Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
Mál 2002151 Allur ferill málsins
Vísað frá íþrótta- og tómstundanefnd til bæjarráðs erindi þar sem hvatt er til innleiðingar Barnasáttmálans í verkefninu Barnvæn sveitarfélög. Erindið var jafnframt tekið fyrir í félagsmálanefnd.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs, fjármálastjóra og mannauðsstjóra að greina áhrif og kostnað við innleiðingu sáttmálans og leggja fyrir bæjarráð að nýju.
-
12. Skipulag fjölskyldusviðs 2020
Mál 2002036 Allur ferill málsins
Vísað frá félagsmálanefnd til umfjöllunar bæjarráðs minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs, félagsmálastjóra og stjórnanda barnaverndar.
Bæjarráð felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs, fjármálastjóra og mannauðsstjóra að greina áhrif og kostnað við tillögur sem lagðar eru til með fjölgun starfsmanna á fjölskyldusviði.
-
13. Vinabæjarmót JEFES í Fjarðabyggð 2020
Mál 1910036 Allur ferill málsins
Farið yfir fyrirhugað vinabæjarmót sem áformað var 11. og 12. maí n.k. Bæjarráð samþykkir að fresta vinabæjarmótinu um óákveðin tíma og felur forseta bæjarstjórnar og bæjarritara að vera í samskiptum við vinabæina.
-
14. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 254
Fundargerð eigna-, skiplags- og umhverfisnefndar frá 9. mars tekin til afgreiðslu.
- 14.1 Gerpissvæðið1908066
- 14.2 Örnefnaskráning í Fjarðabyggð2002084
- 14.3 Framkvæmda- og viðhaldsáætlun 20202001149
- 14.4 Tillaga að sölu íbúða í eigu Fjarðabyggðar1606124
- 14.5 Egilsbúð - félagsheimili (Hús frístunda)1901070
- 14.6 Aðalfundur Landssamtaka landeigenda á Íslandi 19.mars 20202003012
- 14.7 Umferðarsamþykkt Fjarðabyggðar1805134
- 14.8 Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 20202002144
- 14.9 740 Dreifbýli - umsókn um að leggja göngu- og reiðleið meðfram Norðfjarðará2003029
- 14.10 740 Hafnrbraut 15 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi, stækkun lóðar2003009
- 14.11 760 Selnes 1 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi2002192
- 14.12 735 - Deiliskipulag miðbæjar Eskifjarðar1502041
- 14.13 760 Sólvellir 25 - Umsókn um byggingarleyfi, brú og pallur2003006
- 14.14 Hlíðarendavegur 5A - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi2003038
- 14.15 Íbúafundur Reyðarfirði 3.3.20202003032
-
15. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 23
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar frá 9. mars sl. tekin til afgreiðslu.
- 15.1 Verkefni menningarstofu 20202001116
- 15.2 Skapandi sumarstörf 20202003022
- 15.3 Umsókn um styrki til menningarmála1903188
- 15.4 Umsókn um styrki til menningarmála1909039
- 15.5 Umsókn um styrki til menningarmála2001006
- 15.6 Umsókn um styrki til menningarmála2001007
- 15.7 Umsókn um styrki til menningarmála2001122
- 15.8 Umsókn um styrki til menningarmála2002103
- 15.9 Umsókn um styrki til menningarmála2002116
- 15.10 Umsókn um styrki til menningarmála2002170
- 15.11 Umsókn um styrki til menningarmála2002169
- 15.12 Umsókn um styrki til menningarmála2002171
- 15.13 Umsókn um styrki til menningarmála2002172
- 15.14 Umsókn um styrki til menningarmála2002187
- 15.15 Umsókn um styrki til menningarmála2002173
- 15.16 Umsókn um styrki til menningarmála2003002
- 15.17 Umsókn um styrki til menningarmála2003003
- 15.18 Umsókn um styrki til menningarmála2003004
- 15.19 Trjákurl til húshitunar1905004
- 15.20 Fundagerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 20202002186
-
16. Íþrótta- og tómstundanefnd - 70
Fundargerð íþrótta- og tómstundanefndar frá 11. mars sl. tekin til afgreiðslu.
- 16.1 Barnvæn sveitarfélög - Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
- 16.2 Íbúafundur Reyðarfirði 3.3.2020
- 16.3 Endurskoðun samnings um útvistun rekstrar Skíðasvæðisins í Oddsskarði 2019
- 16.4 Forvarnarteymi Fjarðabyggðar
- 16.5 Ábending um gildistíma sundkorta
- 16.6 Gjaldskrá sund- og líkamsræktarkorta
- 16.7 Úthlutun íþróttastyrkja 2020
- 16.8 Frístundastyrkur 2020
- 16.9 Akstursstyrkir vegna íþrótta- og tómstundastarfs barna
-
17. Fræðslunefnd - 81
Fundargerð fræðslunefndar frá 11. mars sl. tekin til afgreiðslu.
- 17.1 Samstarf um heilsueflingu1912107
- 17.2 Opið bréf til bæjarstjórnar Fjarðabyggðar2002080
- 17.3 Skóladagatöl 2020-20212001195
- 17.4 Forvarnarteymi Fjarðabyggðar2002157
- 17.5 Samstarfsverkefni um endurskoðun forsenda úthlutunar og ráðstöfunar fjármuna til kennslu og stuðnings í grunnskólum2003051
- 17.6 Kennslutímamagn grunnskóla Fjarðabyggðar 2020-20212002019
- 17.7 Íbúafundur Reyðarfirði 3.3.20202003032
- 17.8 Fundargerðir framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu 20202002178
-
18. Félagsmálanefnd - 131
Fundargerð félagsmálanefndar frá 10. mars sl. lögð fram til afgreiðslu.
- 18.1 Barnvæn sveitarfélög - Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna2002151
- 18.2 Forvarnarteymi Fjarðabyggðar2002157
- 18.3 Fundargerðir framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu 20202002178
- 18.4 119.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á barnalögum, nr. 76/2003, með síðari breytingum (fæðingarstaður og sveitarfélag fyrsta lögheimilis barns)2002121
- 18.5 Samstarf um heilsueflingu1912107
- 18.6 Frumvarp til breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu, 40/2007, og lögum um málefni aldraðra, 125/1999 323.mál2002164
- 18.7 Jafnréttisstefna 2019-20231910037
- 18.8 Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 20202003030
- 18.9 Skipulag fjölskyldusviðs 20202002036