Opið bréf til bæjarstjórnar Fjarðabyggðar
Mál 2002080 Fyrst á dagskrá 11. mars 2020, síðast 19. mars 2020. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Fræðslunefnd, fundur 81 liður 2
Vísað var frá bæjarráði 17. febrúar til kynningar í fræðslunefnd bréfi foreldra á Reyðarfirði sem gera athugasemdir við þjónustu leikskóla og sundkennslu á Reyðarfirði. Bæjarráð þakkaði ábendingar bréfritara og tók undir áhyggjur af mönnun og starfsemi leikskólans en unnið er að lausnum beggja mála líkt og verið hefur. Fræðslustjóri gerði grein fyrir stöðu mála. Bréf hefur verið sent til foreldra barna sem fædd eru 2019 og sótt hafa um leikskólavistun í leikskólanum Lyngholti á Reyðarfirði. Í bréfinu kemur fram að leikskólinn Lyngholt muni opna 6. deild skólans strax eftir páska, þegar deildin verður tilbúin, en undanfarna mánuði hefur verið unnið að endurbyggingu á elsta húsnæði leikskólans. Búið er að manna deildina og því geta foreldra búsettir á Reyðarfirði, sem nú sækja leikskólaþjónustu í leikskólana á Eskifirði og Fáskrúðsfirði sótt leikskólaþjónustu í leikskólann Lyngholt á Reyðarfirði frá og með miðjum apríl. Sundkennsla nemenda við Grunnskóla Reyðarfjarðar hófst 9. mars í sundlauginni á Eskifirði. Áætlað er að kenndir verði 10 tímar að vori hjá nemendum 1.-9. bekkjar og 20 tímar hjá nemendum í 10. bekk, þannig að þeir geti lokið við hæfniviðmið 10. bekkjar.
-
Bæjarráð, fundur 654 liður 17.2
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 81“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 288 liður 8.2
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 81“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.