Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 131

10. mars 2020, kl. 16:15 til 17:30, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 654 liður 18

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 10. mars sl. lögð fram til afgreiðslu.

  • Bæjarstjórn, fundur 288 liður 9

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 10. mars staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Barnvæn sveitarfélög - Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna

    Mál 2002151 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til umsagnar félagsmálanefndar erindi frá félagsmálaráðuneytinu og UNICEF á Íslandi með tilboði um þátttöku í verkefninu "barnvæn sveitarfélög". Um er að ræða verkefni sem styður sveitarfélög í innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna sem var lögfestur hér á landi árið 2013.

    Félagsmálanefnd felur sviðsstjóra fjölskyldusviðs að sækja um aðild að verkefninu fyrir hönd Fjarðabyggðar.

  2. 2. Forvarnarteymi Fjarðabyggðar

    Mál 2002157 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd hefur fjallað um minnisblað um forvarnarteymi Fjarðabyggðar.

    Nefndin samþykkir stofnun forvarnarteymis Fjarðabyggðar og felur félagsmálastjóra að vinna málið áfram í samstarfi við íþrótta- og tómstundafulltrúa.

  3. 3. Fundargerðir framkvæmdastjórnar Skólaskrifstofu 2020

    Mál 2002178 Allur ferill málsins

    Vísað frá bæjarráði til kynningar í félagsmálanefnd fundargerð framkvæmdaráðs Skólaskrifstofu Austurlands frá 26. febrúar 2020 auk bréfs starfsmanna. Kynnt í félagsmálanefnd.

  4. 4. 119.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á barnalögum, nr. 76/2003, með síðari breytingum (fæðingarstaður og sveitarfélag fyrsta lögheimilis barns)

    Mál 2002121 Allur ferill málsins

    119.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á barnalögum, nr. 76/2003, með síðari breytingum (fæðingarstaður og sveitarfélag fyrsta lögheimilis barns. Umsagnarfrestur er útrunninn en frumvarpið er kynnt í félagsmálanefnd.

  5. 5. Samstarf um heilsueflingu

    Mál 1912107 Allur ferill málsins

    Framlagður til kynningar samstarfssamningur við Institute for Positive Health (IPH) vegna samstarfs HSA við heilsueflandi sveitarfélög á Austurlandi.

    Bæjarráð hefur samþykkt samninginn og vísar honum til kynningar í fastanefndum fjölskyldusviðs.

    Félagsmálanefnd fagnar samstarfssamningnum.

  6. 6. Frumvarp til breytingar á lögum um heilbrigðisþjónustu, 40/2007, og lögum um málefni aldraðra, 125/1999 323.mál

    Mál 2002164 Allur ferill málsins

    Framlögð frumvarp til laga um breytingu á lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 40/2007, og lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999.

    Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemd við frumvarpið.

  7. 7. Jafnréttisstefna 2019-2023

    Mál 1910037 Allur ferill málsins

    Framlagt er minnisblað félagsmálastjóra um stöðu jafnréttisáætlunar Fjarðabyggðar 2019-2023. Staða verkþátta er að jafnlaunavottun sveitarfélagsins er að ljúka og samantekt á hlutfalli kynja í nefndum, ráðum og stjórnum Fjarðabyggðar er lokið. Að meðaltali skiptast nefndarmenn í fastanefndum og bæjarráði þannig að karlar eru 49,3% og konur 50,7%, og hlutfall formanna er jafnt eftir kynjum en í undirnefndum, ráðum og stjórnum eru 80% formanna karlar en í nefndunum eru karlar að meðaltali 57,4% og konur 42,6%. Félagsmálanefnd hefur tekið málið til umfjöllunar og vísar til bæjarráðs til meðferðar skv. lið 2.1 II kafla jafnréttisstefnu Fjarðabyggðar 2019-2023.

  8. 8. Reglur um sérstakan húsnæðisstuðning 2020

    Mál 2003030 Allur ferill málsins

    Framlögð er tillaga að breyttum reglum um sérstakan húsnæðisstuðning ásamnt minnisblaði sviðsstjóra fjölskyldusviðs. Um lítilsháttar breytingar er að ræða auk uppfærslu á upphæðum og tekjuviðmiðum. Félagsmálanefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.

  9. 9. Skipulag fjölskyldusviðs 2020

    Mál 2002036 Allur ferill málsins

    Framlagt er minnisblað sviðsstjóra, félagsmálastjóra og stjórnanda barnaverndar til kynningar til félagsmálanefndar. Félagsmálanefnd tekur vel í erindið og vísar til bæjarráðs.