Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 130

11. febrúar 2020, kl. 16:15 til 17:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 286 liður 5

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 11. febrúar sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 457.mál til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda, nr. 116/2012, með síðari breytingum (móttaka flóttafólks og innflytjendaráð)

    Mál 2001214 Allur ferill málsins

    Velferðarnefnd Alþingis sendi til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda, nr. 116/2012, með síðari breytingum (móttaka flóttafólks og innflytjendaráð), 457. mál. Félagsmálanefnd gerir ekki athugasemd við frumvarpið.

  2. 2. Félagsmálanefnd 2020

    Mál 2001229 Allur ferill málsins

    Framlögð er tillaga um fundartíma félagsmálanefndar á vorönn 2020. Fastur fundartími verður á þriðjudögum kl. 16:15 einu sinni í mánuði skv. tillögunni. Félagsmálanefnd samþykkir tillöguna.

  3. 3. Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027

    Mál 1810136 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu endurskoðunar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027. Lögð fram tillaga sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um að leitað verði eftir ábendingum frá öðrum nefndum í stjórnkerfi Fjarðabyggðar um viðfangsefni sem ástæða væri til að skoða við gerð lýsingar aðalskipulagsins. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að leitað verði eftir afstöðu bæjarráðs, fræðslunefndar, félagsmálanefndar, íþrótta- og tómstundanefndar, menningar- og nýsköpunarnefndar og hafnarstjórnar. Félagsmálanefnd felur félagsmálastjóra að skrifa minnisblað til sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um afstöðu nefndarinnar.

  4. 4. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 15

    Fundargerðin í heild

    Framlögð fundargerð 15. fundar framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna. Fulltrúar félagsmálanefndar í framkvæmdaráði gerðu grein fyrir fundargerðinni. Félagsmálanefnd staðfestir fyrirliggjandi fundargerð.

    1. 4.1 Rekstur Uppsala 2019
    2. 4.2 Rekstur Hulduhlíðar 2019
    3. 4.3 Endurnýjun húsnæðis Uppsala
    4. 4.4 Umsóknir um framlög úr framkvæmdasjóði aldraðra 2020
    5. 4.5 Samningar um rekstur Hulduhlíðar og Uppsala við Sjúkratryggingar Íslands 2020-2021
    6. 4.6 Þátttaka í norrænu verkefni um fjarheilbrigðisþjónustu