Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 129

14. janúar 2020, kl. 16:15 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Laufey Þórðardóttir, embættismaður

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 647 liður 17

    Fundargerð félagsmálanefndar frá 14. janúar sl. lögð fram til afgreiðslu.

Dagskrá

  1. 1. Rekstur hjúkrunarheimila 2019

    Mál 1902009 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hjúkrunarheimila greindi frá rekstri hjúkrunarheimilanna Uppsala og Hulduhlíðar.

  2. 2. Starfs- og fjárhagsáætlun hjúkrunarheimila 2020

    Mál 1905070 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hjúkrunarheimila Fjarðabyggðar kynnti starfs- og fjárhagsáætlun hjúkrunarheimilanna Uppsala og Hulduhlíðar vegna ársins 2020. Félagsmálanefnd lýsir yfir ánægju með batnandi rekstur.

  3. 3. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 14

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna var lögð fram til kynningar í félagsmálanefnd. Fundargerð hefur verið staðfest í bæjarráði.

    1. 3.1 Endurnýjun húsnæðis Uppsala
    2. 3.2 Starfs- og fjárhagsáætlun hjúkrunarheimila 2020
    3. 3.3 Umboð til samningsgerðar við Sjúkratryggingar Íslands
  4. 4. Reglur um fjárhagsaðstoð 2020

    Mál 2001034 Allur ferill málsins

    Framlagt er minnisblað félagsmálastjóra til félagsmálanefndar. Félagsmálanefnd felur félagsmálastjóra ásamt sviðsstjóra fjölskyldusviðs að kanna þörf á að breyta reglum Fjarðabyggðar um fjárhagsaðstoð og vinna tillögu að breytingum í kjölfarið ef þörf er á.

  5. 5. 383.mál til umsagnar frumvarp til laga um um breytingu á lögum um málefni aldraðra, nr. 125/1999 (öldungaráð),

    Mál 1912041 Allur ferill málsins

    Frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra var lagt fram til kynningar í félagmálanefnd.

  6. 6. Umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2020

    Mál 1910119 Allur ferill málsins

    Framlögð er umsókn Kvennaathvarfs um rekstrarstyrk fyrir árið 2020 til umfjöllunar og samþykktar í félagsmálanefnd. Samþykkt er að veita kr. 400.000 í styrk á árinu 2020.

  7. 7. Styrkbeiðni vegna reksturs Aflsins 2020

    Mál 1912082 Allur ferill málsins

    Framlögð er styrkbeiðni vegna reksturs Aflsins 2020 til meðferðar og samþykktar í félagsmálanefnd. Samþykkt er að styrkja starfsemi Aflsins um kr. 72.000 á árinu 2020.

  8. 8. Styrkbeiðni vegna Stígamóta 2020

    Mál 1910112 Allur ferill málsins

    Framlögð er styrkbeiðni Stígamóta fyrir árið 2020 til meðferðar og samþykktar í félagsmálanefnd. Samþykkt er að styrkja rekstur Stígamóta um kr. 350.000 á árinu 2020.

  9. 9. Öldungaráð - 2

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð öldungaráðs var lögð fram til kynningar í félagsmálanefnd. Fundargerðin hefur verið staðfest af bæjarráði.

    1. 9.1 Heilsuefling 65 ára og eldri í Fjarðabyggð1802096
    2. 9.2 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
    3. 9.3 Starfsáætlun öldungaráðs 20201912104