Rekstur hjúkrunarheimila 2019
Mál 1902009 Fyrst á dagskrá 1. júlí 2019, síðast 20. janúar 2020. 4 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Félagsmálanefnd.
Í heiti málsins: Velferð
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Bæjarráð, fundur 622 liður 6
Vísað frá framkvæmdaráði hjúkrunarheimilanna greinargerð um rekstur þeirra. Framkvæmdastjóri hjúkrunarheimilanna óskar eftir framlagi frá Fjarðabyggð til að fjármagna rekstur heimilanna á árinu 2019. Um er að ræða 5,5 m.kr. vegna Uppsala og 3,0 m.kr. vegna Hulduhlíðar, sbr. framlagt minnisblað.
Bæjarráð samþykkir að veita umbeðið lán til hjúkrunarheimilanna. Jafnframt er það ljóst að rekstrargrundvöllur hjúkrunarheimilanna í Fjarðabyggð er ekki til staðar á grundvelli núverandi framlaga til rekstursins. Þá er enn beðið svara ráðherra á þörf fyrir endurbætur á húsnæði og brýnnar þarfar fyrir fjölgun hjúkrunarrýma í sveitarfélaginu. Bæjarráð getur ekki unað þessari stöðu lengur og ítrekar fyrri ósk sína um fund með heilbrigðisráðherra.
-
Bæjarstjórn, fundur 272 liður 1.6
Fundargerðin „Bæjarráð - 622“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
2020
Félagsmálanefnd, fundur 129 liður 1
Framkvæmdastjóri hjúkrunarheimila greindi frá rekstri hjúkrunarheimilanna Uppsala og Hulduhlíðar.
-
Bæjarráð, fundur 647 liður 17.1
Fundargerðin „Félagsmálanefnd - 129“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.