Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 128

19. nóvember 2019, kl. 16:30 til 17:50, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 280 liður 5

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar nr. 128 frá 19.nóvember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 41.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum.

    Mál 1910080 Allur ferill málsins

    Lögð er fram til kynningar tillaga til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum.

  2. 2. 35.mál til umsagnar tillögu til þingsályktunar um orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega, 35. mál.

    Mál 1910081 Allur ferill málsins

    Lögð er fram til kynningar tillaga til þingsályktunar um orlofshúsnæði örorkulífeyrisþega.

  3. 3. 328.mál til umsagnar frumvarp til laga um ávana- og fíkniefni (neyslurými),

    Mál 1911039 Allur ferill málsins

    Lagt er fram til kynningar frumvarp til laga um ávana- og fíkniefni (neyslurými).

  4. 4. Reglur um snjómokstur fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega

    Mál 1904081 Allur ferill málsins

    Fyrir liggja endurskoðaðar reglur um snjómokstur fyrir eldri borgara og öryrkja. Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar og vísar til bæjarráðs.

  5. 5. Reglur um garðslátt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega

    Mál 1806144 Allur ferill málsins

    Fyrir liggja endurskoðaðar reglur um garðslátt fyrir eldri borgara og öryrkja. Félagsmálanefnd samþykkir reglurnar og vísar til bæjarráðs.

  6. 6. Ungt fólk 5.-7. bekkur Fjarðabyggð

    Mál 1910160 Allur ferill málsins

    Skýrsla Rannsóknar og Greiningar um ungt fólk, nemendur í 5. - 7. bekk, í Fjarðabyggð lögð fram til kynningar. Skýrslan byggir á niðurstöðu könnunar sem lögð var fyrir alla nemendur á Íslandi í febrúar 2019. Nemendur voru spurðir um samband við foreldra, fjölskyldu og vini, líðan og stríðni, nám og skóla, íþrótta- og tómstundastarf, frítímann og barnasáttmálann. Félagsmálanefnd fagnar skýrslunni og vonast til þess að efni hennar nýtist hlutaðeigandi aðilum sem allra best.

  7. 7. 320.mál til umsagnar frumvarp til laga um almannatryggingar almennar íbúðir (hækkun tekju- og eignamarka leigjenda, sérstakt byggðaframlag, veðsetningu),

    Mál 1911082 Allur ferill málsins

    Lagt er fram til kynningar frumvarp til laga um almennatryggingar almennar íbúðir (hækkun tekju- og eignamarka leigjenda, sérstakt byggðaframlag, veðsetningu.)