Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 127

15. október 2019, kl. 16:30 til 18:15, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Helga Elísabet Guðlaugsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Heiðar Már Antonsson, aðalmaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður
  • Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, aðalmaður
  • Lára Elísabet Eiríksdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Helga Elísabet Beck Guðlaugsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 635 liður 26

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 127 frá 15.október 2019, lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 277 liður 7

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 127 frá 15.október 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Gjaldskrá félagslegrar heimþjónustu 2020

    Mál 1909155 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu vegna 2020, hækki um 2,5% 1.janúar 2020. Afgreiðslu vísað til bæjarráðs.

  2. 2. Gjaldskrá þjónustuíbúða í Breiðablik 2020

    Mál 1909151 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leyti að gjaldskrá fyrir þjónustuíbúðir í Breiðabliki vegna 2020 hækki um 2,5% 1.janúar 2020. Afgreiðslu vísað til bæjarráðs.

  3. 3. Reglur um snjómokstur fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega

    Mál 1904081 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd felur verkefnastjóra búsetuþjónustu að halda áfram vinnu við reglur um snjómokstur.

  4. 4. Gjaldskrá snjómokstur fyrir öryrkja og eldri borgara

    Mál 1909179 Allur ferill málsins

    Gjaldskrá lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu nefndar. Lagt er til að gjaldskrá hækki um 2,5% frá 1. janúar 2020. Félagsmálanefnd samþykkir fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.

  5. 5. Gjaldskrá garðsláttur fyrir öryrkja og eldriborgara

    Mál 1909178 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að gjaldskrá fyrir garðslátt eldri borgara og öryrkja vegna 2020, hækki um 2,5% 1.janúar 2020. Afgreiðslu vísað til bæjarráðs.

  6. 6. Reglur um garðslátt fyrir öryrkja og ellilífeyrisþega

    Mál 1806144 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd felur verkefnastjóra búsetuþjónustu áframhaldandi vinnu við reglur um garðslátt og frestar umfjöllun til næsta fundar.

  7. 7. Gjaldskrá Fjölskyldusviðs 2020 vegna stuðningsfjölskyldna við fötluð börn

    Mál 1909174 Allur ferill málsins

    Félagsmálanefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að gjaldskrá þjónustu stuðningsfjölskyldna við fötluð börn vegna 2020, hækki samkvæmt hækkun á barnalífeyri TR árið 2020. Afgreiðslu vísað til bæjarráðs.

  8. 8. Umsókn um styrk til Bergsins headspace vegna 2020

    Mál 1910060 Allur ferill málsins

    Framlögð er umsókn um styrk til Bergsins headspace til umfjöllunar og meðferðar nefndar. Félagsmálanefnd hafnar umsókninni.

  9. 9. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2019

    Mál 1809009 Allur ferill málsins

    Lokið er yfirferð á fjárhagsáætlun og lokið fundi og lokið fundi formanns félagsmálanefndar og félagsmálastjóra með bæjarráði og bæjarstjóra. Félagsmálanefnd samþykkir fjárhagsáætlun vegna ársins 2020 og felur félagsmálastjóra áframhaldandi vinnslu við starfsáætlun.

  10. 10. Jafnréttisstefna 2019-2023

    Mál 1910037 Allur ferill málsins

    Framlögð er endurskoðuð jafnréttisstefna Fjarðabyggðar 2019-2023 til umfjöllunar og samþykktar félagmálanefndar. Félagsmálanefnd samþykkir jafnréttisstefnu 2019-2023 fyrir sitt leyti og vísar til bæjarráðs.