Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 655

23. mars 2020, kl. 08:30 til 10:30, í fjarfundi vegna COVID19. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður
  • Stefán Aspar Stefánsson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2019 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 2001126 Allur ferill málsins

    Magnús Jónsson endurskoðandi Fjarðabyggðar kom inn á fundinn og upplýsti um að drög að ársreikningi Fjarðabyggðar fyrir árið 2019 séu ekki tilbúinn.

    Bæjarráð samþykkir að endurskoðandi Fjarðabyggðar komi og geri grein fyrir vinnu við ársreikning Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2019 á næsta á fundi 30. mars nk.

  2. 2. Endurskoðun á ráðstöfun og meðferð 5,3% atvinnu- og byggðakvóta

    Mál 2003120 Allur ferill málsins

    Árlega er úthlutað aflamarki til sérstakra aðgerða í fiskveiðistjórnunarkerfi Íslands. Er aflamarkið, sem er 5,3% af heildarafla í hverri fisktegund, dregið af leyfilegum heildarafla til að mæta áföllum, til stuðnings byggðalögum, línuívilnunar, strandveiða, rækju- og skelbóta, frístundaveiðar og til annarra tímabundinna ráðstafana til að auka byggðafestu. Á síðasta ári var úthlutað rúmlega 23 þús. þorskígildistonnum af heildaraflanum til umræddra aðgerða. Starfshópur á vegum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, skilaði af sér tillögum þann 21. febrúar sl. um áðurnefnt kerfi. Bæjarstjóri hefur óskað eftir því fyrir hönd Fjarðabyggðar að fá að veita umsögn við skýrsluna og fengið frest til þess til 23. mars nk.

    Bæjarráð felur atvinnu- og þróunarstjóra að senda inn umsögn um skýrsluna.

  3. 3. Auglýsing samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga

    Mál 2003111 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar auglýsing um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga.

    Bæjarráð samþykkir að fundir bæjarstjórnar, nefndar- og ráða verði haldnir sem fjarfundir á meðan samkomubann stjórnvalda er í gildi og að unnið sé eftir leiðbeiningum Sambands íslenskra sveitarfélaga vegna fjarfunda hjá sveitarfélögum. Vert er að taka fram að nú þegar hafa verið haldnir slíkir fundir hjá bæjarstjórn og nefndum sveitarfélagsins.

  4. 4. Viðspyrna af hálfu sveitarfélaga fyrir íslenskt atvinnulíf

    Mál 2003122 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Sambands íslenskra sveitarfélaga þar sem sveitarfélög eru hvött til þess að hrinda í framkvæmd eins og kostur er hugmyndum og ábendingum að aðgerðum til viðspyrnu fyrir íslenskt atvinnulíf í ljósi þess samdráttar sem blasir við í þjóðarbúskapnum.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra, fjármálastjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs að taka saman minnisblað ásamt tillögum til aðgerða til viðspyrnu fyrir atvinnulíf og íbúa í Fjarðabyggð eftir umræðu á fundinum. Reikningar vegna leikskóla- og frístundargjalda sem og skólamáltíða hafa verið sendir út eins og um fulla þjónustu sé að ræða í marsmánuði.

    Bæjarráð samþykkir að leiðrétt verði fyrir þeirri skerðingu sem nú er orðin á þessari þjónustu og felur fjármálastjóra útfærslu í samræmi við umræður á fundinum og í samvinnu við sviðsstjóra fjölskyldusviðs.

    Með þessu verði komið til móts við foreldra/forráðamanna barna sem ákveða að hafa börn sín heima til að létta á starfsemi leikskóla eða vegna sóttkvíar og draga þá daga frá gjöldum. Jafnframt verði þeir dagar sem lokað verður í íþróttamiðstöðvum bætt aftan við gildistíma inneigna notenda. Tekið fyrir að nýju á næsta fundi bæjarráðs.

  5. 5. Þjónustusamningur milli Safnastofnun Fj. og Myndlistarsafn Tryggva

    Mál 2003096 Allur ferill málsins

    Vísað frá safnanefnd til afgreiðslu í bæjarráði þjónustusamningi Safnastofnunar og Myndlistasafns Tryggva Ólafssonar fyrir árið 2020. Bæjarráð samþykkir tillögu Safnanefndar.

  6. 6. Slit félagsins Sjóminja- og smiðjuminjasafn Jósafats Hinrikssonar

    Mál 1911133 Allur ferill málsins

    Vísað frá safnanefnd til kynningar í bæjarráði minnisblaði um slit á Sjálfseignastofnun um Sjóminja- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar. Bæjarráð samþykkir að ákvæði gjafabréfs eigenda safnsins til sveitarfélagsins komi til framkvæmda og Fjarðabyggð verði með þessu ábyrgðaraðili safnsins.

  7. 7. Tilkynning um slit á Safnaráði Neskaupstað

    Mál 2003097 Allur ferill málsins

    Vísað frá safnanefnd til kynningar í bæjarráði minnisblaði um slit á Safnaráði Neskaupstaðar. Lagt fram til kynningar.

  8. 8. Vottun gervigrass í Fjarðabyggðarhöllinni

    Mál 1909149 Allur ferill málsins

    Lögð fyrir bæjarráð niðurstaða á formlegri verðfyrirspurn sem verkfræðistofan Mannvit lét framkvæma fyrir Fjarðabyggð vegna lagningar á nýju gervigrasi á Fjarðabyggðarhöllina. Íþrótta- og frístundastjóri og verkefnastjóri á framkvæmdasviði í samráði við verkfræðistofuna Mannvit ehf. telja hagkvæmast fyrir Fjarðabyggð að taka einu tilboðanna frá Metatron á Polytan Ligaturf RS 240 gervigrasi. Verðtilboðið miðast við að geta endurnýtt gúmmípúðana undir vellinum og 70% af því gúmmi sem er í vellinum fyrir. Heildarkostnaðurinn yrði 40.415.119 kr.

    Bæjarráð samþykkir að taka verðtilboði frá Metatron á Polytan Ligaturf RS 240 gervigrasi. Heildarkostnaðurinn yrði 40.415.119 kr. Vísað til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar til áframhaldandi vinnslu og til kynningar í íþrótta- og tómstundarnefnd og ungmennaráði.

  9. 9. Krafa um bætur - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1903195 Allur ferill málsins

    Bæjarstjóri fór yfir kröfu og atvik máls sem lagt hefur verið fram gagnvart sveitarfélaginu vegna atvika í slökkviliði. Umfjöllun er trúnaðarmál og gögn framlögð sem trúnaðarmál.

    Bæjarstjóra og bæjarritara falið að vinna málið áfram.

  10. 10. Safnanefnd - 14

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð safnanefndar frá 17. mars sl. lögð fram til afgreiðslu.

    1. 10.1 Reglugerð um rekstur héraðsskjalasafns2002106
    2. 10.2 Sala á Búðarvegi 8 - Templarinn2002096
    3. 10.3 Fundagerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 20202002186
    4. 10.4 Þjónustusamningur milli Safnastofnun Fj. og Myndlistarsafn Tryggva2003096
    5. 10.5 Tilkynning um slit á Safnaráði Neskaupstað2003097
    6. 10.6 Slit félagsins Sjóminja- og smiðjuminjasafn Jósafats Hinrikssonar1911133
    7. 10.7 Fyrirhuguð uppbygging Íslenska stríðsárasafnsins.1812130
    8. 10.8 Stjórn Sjóminjasafns Austurlands.1806162
  11. 10. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 16

    Fundargerðin í heild

    Lögð fram til afgreiðslu fundargerð framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna frá 17. mars sl.

    1. 10.1 Rekstur hjúkrunarheimila og Covid 19
    2. 10.2 Viðbragðsáætlanir hjúkrunarheimilanna
    3. 10.3 Bréf SFV til heilbrigðisráðherra vegna samdráttar hjúkrunarheimila í kjölfar Covid 19