Samstarfsverkefni um endurskoðun forsenda úthlutunar og ráðstöfunar fjármuna til kennslu og stuðnings í grunnskólum
Mál 2003051 Fyrst á dagskrá 11. mars 2020, síðast 16. apríl 2020. 6 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2020
Fræðslunefnd, fundur 81 liður 5
Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga óska eftir þátttöku sveitarfélaga í samstarfsverkefni um endurskoðun á forsendum úthlutunar og ráðstöfunar fjármuna til kennslu og stuðnings í grunnskólum. Meginmarkmið endurskoðunarinnar er að reglum um fjárframlög verði breytt þannig að áhersla verði lögð á snemmbæran stuðning og forvarnir til þess að auka hæfni kerfisins til að starfa á grundvelli jafnaðar, skilvirkni og hagkvæmni. Samstarfsverkefnið er þróunarferli, sem tekur til hugmyndavinnu um forsendur úthlutunar og ráðstöfunar fjármuna í grunnskóla og hvernig best er að innleiða mögulegar breytingar, í samræmi við ábendingar sem fram komu í úttektarskýrslu Evrópumiðstöðvar um nám án aðgreiningar og sérþarfir. Í vinnunni verður lögð áhersla á nýsköpun og hugmyndaauðgi þátttakenda sem byggir á sýn þeirra og reynslu. Stefnt er að því að verkefnið hefjist í mars 2020 og í árslok liggi fyrir leiðbeinandi viðmið fyrir sveitarfélög um hvernig best verði staðið að skilgreiningum á forsendum úthlutunar og ráðstöfunar fjármuna til kennslu og stuðnings í grunnskóla fyrir alla. Verkefninu verður stýrt af mennta- og menningarmálaráðuneytinu með aðkomu sérfræðinga frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Með þátttöku sveitarfélaga í verkefninu skuldbinda þau sig til vinnuframlags og greiðslu ferða- og fundakostnaðar. Þau sveitarfélög sem hafa áhuga á að taka þátt í verkefninu eða fá frekari upplýsingar um það eru beðin að hafa samband við mennta- og menningarmálaráðuneytinu fyrir 14. mars n.k.
Lesa alla bókunina (40 orð til viðbótar)
Fræðslustjóri og sviðsstjóri fjölskyldusviðs telja gagnlegt fyrir sveitarfélagið Fjarðabyggð að taka þátt í þessari vinnu og leggja til að sveitarfélagið sæki um þátttöku. Fram kom að fundir verða allir með fjarfundasniði. Fræðslunefnd felur fræðslustjóra að sækja um þátttöku í verkefninu.
-
Bæjarráð, fundur 654 liður 17.5
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 81“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 288 liður 8.5
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 81“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Fræðslunefnd, fundur 82 liður 3
Umsókn Fjarðabyggðar um þátttöku í þróunarverkefninu, Samstarfsverkefni um endurskoðun forsenda úthlutunar og ráðstöfunar fjármuna til kennslu og stuðnings í grunnskólum, var samþykkt, ásamt umsókn 13 annarra sveitarfélaga. Sviðsstjóri fjölskyldusviðs, fjármálastjóri og fræðslustjóri sinna verkefninu fyrir hönd Fjarðabyggðar. Haldinn hefur verið einn kynningarfundur og greiningarvinna farin af stað í hverju sveitarfélagi. Gert er ráð fyrir að verkefninu ljúki í árslok 2020.
-
Bæjarráð, fundur 657 liður 11.3
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 82“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 290 liður 8.3
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 82“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.