Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 235

20. janúar 2020, kl. 11:30 til 13:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 648 liður 5

    Framlögð til afgreiðslu fundargerð hafnarstjórnar frá 20. janúar sl.

Dagskrá

  1. 1. Efnistaka í Norðfjarðarflóa - Hellisfjörður

    Mál 1612118 Allur ferill málsins

    Lögð fram gögn varðandi matsferli fyrirhugaðs efnistökusvæðis í Hellisfirði. Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna í samvinnu við Alta að vinna áfram með efnistökusvæði í Hellisfirði í samhengi við heildarefnistöku í Norðfjarðarflóa. Jafnframt er verkefnastjóra hafna falið að leita tilboða í borkjarnatökur vegna efnistökurannsókna í Fjarðabyggð. Einnig er verkefnastjóra falið að meta þörf fyrir efnistöku vegna hafnarframkvæmda í Fjarðabyggð næstu fimm árin og efnistökumöguleika þeim tengdum á landi og leggja fyrir hafnarstjórn.

  2. 2. Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027

    Mál 1810136 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu endurskoðunar á Aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007-2027. Lögð fram tillaga sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs um að leitað verði eftir ábendingum frá öðrum nefndum í stjórnkerfi Fjarðabyggðar um viðfangsefni sem ástæða væri til að skoða við gerð lýsingar aðalskipulagsins. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að leitað verði eftir afstöðu bæjarráðs, fræðslunefndar, félagsmálanefndar, íþrótta- og tómstundanefndar, menningar- og nýsköpunarnefndar og hafnarstjórnar.

    Hafnarstjórn felur verkefnastjóra hafna að taka saman drög að ábendingum frá hafnarstjórn til lýsingar aðalskipulags. Jafnframt óskar hafnarstjórn eftir því að sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs komi á næsta fund hafnarstjórnar til samráðs.

  3. 3. Breyting á nafni Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar

    Mál 2001136 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að breytingu á nafni Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar þannig að notað verði nafnið Fjarðabyggðarhafnir. Hafnarstjórn samþykkir breytingu.

  4. 4. Umsókn um girðingu á geymslusvæði Laxa Fiskeldis

    Mál 2001070 Allur ferill málsins

    Lögð fram umsókn Laxa Fiskeldis um að reisa girðingu til að afmarka athafnasvæði Laxa Fiskeldis ehf á Eskifirði. Hafnarstjórn heimilar Löxum að girða af svæði sitt í samráði við verkefnastjóra hafna og henni falið að ræða við bréfritara.