Hafnarstjórn, fundur 236
6. febrúar 2020, kl. 11:30 til 13:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
- Kristinn Grétar Rögnvarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 650 liður 19
Fundargerð hafnarstjórnar frá 6. febrúar sl. tekin til afgreiðslu.
Bæjarstjórn, fundur 286 liður 4
Enginn tók til máls.
Fundargerð hafnarstjórnar frá 6. febrúar sl. utan liðar 2 staðfest með 9 atkvæðum. Dagskrárliður tekinn til afgreiðslu sérstaklega.
Dagskrá
-
1. Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027
Mál 1810136 Allur ferill málsins
Sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs kom á fundinn til samráðs vegna endurskoðunar Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027. Nefndin fór yfir forsendur hafnarstjórnar til skipulagslýsingarinnar. Verkefnastjóra hafna og sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs falin vinna við frágang umsagnar fyrir hönd Fjarðabyggðarhafna.
-
2. Skemmdir á bryggju við Egilsbraut 26
Mál 2001203 Allur ferill málsins
Lagt fram erindi frá Guðröði Hákonarsyni þar sem óskað er eftir styrk til viðgerðar á bryggju.
Samkvæmt reglum um endurgerð gamalla bryggja má ekki styrkja bryggju innan fimm ára frá því að styrkur var síðast veittur, sbr.3.gr. reglnanna. Eru því ekki forsendur til að verða við beiðni bréfritara.
-
3. Clean up Iceland - Strandhreinsun leiðangursskipa
Mál 2002018 Allur ferill málsins
North Atlantic Agency (NAA) óskar þátttöku Fjarðabyggðarhafna í strandhreinsunarverkefni sem felur í sér að farþegar leiðangursskipa fara í land og tína rusl í útvöldum fjörum. Hafnarstjórn þakkar erindið en tekur ekki þátt í verkefninu að svo stöddu. Horft verður áfram til félagasamtaka í heimabyggð með hreinsun á fjörusvæðum í óbyggðum. Erindi og afstöðu hafnarstjórnar vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
-
4. Seatrade Med sýningin í Málaga 2020
Mál 2001160 Allur ferill málsins
Lagður fram tölvupóstur vegna Seatrade Cruise Med sýningarinnar sem haldin verður í Málaga á Spáni 16.-17.september 2020. Hafnarstjórn samþykkir að nýta sameiginlegan markaðsfulltrúa Cruise Iceland og felur verkefnastjóra hafna, atvinnu- og þróunarstjóra, og upplýsinga- og kynningarfulltrúa að vinna nýtt kynningarefni fyrir Fjarðabyggðarhafnir vegna sýningarinnar og móttöku farþegaskipa almennt.
-
5. Fundargerðir Hafnarsambands Íslands 2020
Mál 2001204 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð Hafnasambands Íslands frá 20.janúar síðastliðnum.
-
6. Framkvæmdir hafnarsjóðs 2020
Mál 2002025 Allur ferill málsins
Farið yfir stöðu framkvæmda hafnarsjóðs og það sem framundan er á árinu. Hafnarstjórn ræddi málin og felur verkefnastjóra hafna og sviðsstjóra framkvæmdasviðs áframhaldandi undirbúning framkvæmda.