Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2020

Clean up Iceland - Strandhreinsun leiðangursskipa

Mál 2002018 Fyrst á dagskrá 6. febrúar 2020, síðast 20. febrúar 2020. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, Hafnarstjórn.

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2020

    Hafnarstjórn, fundur 236 liður 3

    North Atlantic Agency (NAA) óskar þátttöku Fjarðabyggðarhafna í strandhreinsunarverkefni sem felur í sér að farþegar leiðangursskipa fara í land og tína rusl í útvöldum fjörum. Hafnarstjórn þakkar erindið en tekur ekki þátt í verkefninu að svo stöddu. Horft verður áfram til félagasamtaka í heimabyggð með hreinsun á fjörusvæðum í óbyggðum. Erindi og afstöðu hafnarstjórnar vísað til kynningar í eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

  2. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 252 liður 4

    Lagður fram tölvupóstur North Atlantic Agency, dagsettur 4. febrúar 2020, þar sem óskað er eftir þátttöku Fjarðabyggðar í strandhreinsunarverkefni sem felur í sér að farþegar leiðangursskipa fara í land og tína rusl í útvöldum fjörum. Fjallað hefur verið um erindið í hafnarstjórn sem er ekki tilbúin að taka þátt í verkefninu að svo stöddu. Horft verður áfram til félagasamtaka í heimabyggð með hreinsun á fjörusvæðum í óbyggðum.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd tekur undir bókun hafnarstjórnar.

  3. Bæjarráð, fundur 650 liður 19.3

    Fundargerðin „Hafnarstjórn - 236“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  4. Bæjarstjórn, fundur 286 liður 3.4

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 252“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  5. Bæjarstjórn, fundur 286 liður 4.3

    Fundargerðin „Hafnarstjórn - 236“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is