Hafnarstjórn, fundur 231
11. nóvember 2019, kl. 11:30 til 13:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Birgitta Rúnarsdóttir.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður
- Kristinn Grétar Rögnvarsson, aðalmaður
Starfsmenn
- Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Birgitta Rúnarsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 639 liður 2
Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 231 frá 11.nóvember 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 279 liður 6
Fundargerðir hafnarstjórnar nr. 230 og nr. 231 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tók Jón Björn Hákonarsson.
Fundargerð hafnarstjórnar nr. 231 frá 11. nóvember 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Laxar Fiskeldi ehf ný hafnaraðstaða
Mál 1910162 Allur ferill málsins
Jens Garðar Helgason framkvæmdarstjóri Laxa Fiskeldis ehf. kom á fundinn. Rædd málefni Laxa og hugmyndir að hafnaraðstöðu við norðanverðan Reyðarfjörð. Verkefnastjóra hafna falið að skoða frekari forsendur og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.
-
2. Umsókn Laxa Fiskeldis um Hjálmeyri
Mál 1906121 Allur ferill málsins
Hafnarstjórn hefur áður fjallað um erindi frá Löxum Fiskeldi ehf. sem kom 21. júní 2019 þar sem óskað var eftir því að fá aðstöðu við Hjálmeyri fyrir sex til átta eldiskvíar.
Einnig sagði í bréfinu að fulltrúar Laxa væru þess full meðvitaðir að staðsetningin við Hjálmeyri megi ekki hafa áhrif á efnistöku sveitarfélagsins undan Eyri.
Hafnarsjóður getur fallist á að Laxar Fiskeldi ehf hefji eldi við Hjálmeyri í sex til átta kvíum gegn þeim skilyrðum að það muni ekki hafa nein áhrif á efnistöku við Eyri, hvorki hindra siglingu dæluskipsins til og frá Eyri, né siglingu annarra skipa eftir siglingaleið fjarðarins.
Öryggissvæði hafnarinnar við Mjóeyri skal haft í fyrirrúmi þegar eldiskvíar verða settar út.
Farið verður yfir öryggismál hafnarsvæðisins á Mjóeyri með starfsmönnum Laxa áður en framkvæmdir við útsetningu kvía hefst.
Fara verður eftir þessum skilyrðum í öllum tilvikum.
-
3. Nýtt leiðarkerfi Eimskip
Mál 1910072 Allur ferill málsins
Erindi frá Eimskip merkt trúnaðarmál. Svar fært í trúnaðarmálabók.
-
4. Skjónulækur
Mál 1704006 Allur ferill málsins
Lögð fram skjöl frá opnun útboðs í Skjónulæk. Einungis barst eitt tilboð frá Héraðsverki sem er 94,5% af kostnaðaráætlun. Einnig lögð fram tillaga þar sem framkvæmdakostnaður hefur verið lækkaður að tillögu verktaka. Hafnarstjórn samþykkir að taka því tilboði og felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að ganga frá samningum og jafnframt skoða frekari til lækkunar.
-
5. Stálþil - Viðhald og viðgerðir
Mál 1904089 Allur ferill málsins
Hafnarstjórn fjallaði um endurnýjun stálþils á Eskifirði og minnisblað frá Eflu þar að lútandi. Hafnarstjórn samþykkir að fela framkvæmdasviði frekari skoðun á breytingar samhliða endurnýjun stálþils og leggja fyrir hafnarstjórn að nýju.
-
6. Veðurstöðvar á Fjarðabyggðarhöfnum
Mál 1911045 Allur ferill málsins
Lögð fram kynning á veðurstöðvum fyrir hafnir Fjarðabyggðar. Hafnarstjórn samþykkir að fela verkefnastjóra hafna að taka saman frekari upplýsingar og leggja fyrir næsta hafnarstjórnarfund.
-
7. Starfs- og fjárhagsáætlun Hafnarstjórnar 2020
Mál 1904137 Allur ferill málsins
Hafnarstjórn ræddi starfs- og fjárhagsáætlun hafnarstjórnar 2020 sem fara á til síðari umræðu í bæjarstjórn 14.nóvember 2019. Ekki hafa orðið breytingar á fjárhagsáætlun Hafnarsjóðs á milli umræðna í bæjarstjórn. Hafnarstjórn telur samt að koma þurfi til frekari skoðunar á ýmsum þáttum þegar forsendur þeirra skýrast á komandi mánuðum.