Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2019

Beiðni um styrk vegna jólasjóðsins 2019

Mál 1911193 Fyrst á dagskrá 2. desember 2019, síðast 12. desember 2019. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.

Í heiti málsins: Styrkir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2019

    Bæjarráð, fundur 642 liður 4

    Ákvörðun um framlag í jólasjóð Fjarðabyggðar 2019. Hefð er komin á samvinnu Rauða kross deilda í Fjarðabyggð og Fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar, Mæðrastyrksnefndar Kvenfélagsins Nönnu, Kvenfélags Reyðarfjarðar, Kaþólsku kirkjunnar og Þjóðkirkjunnar, við að styrkja einstaklinga og fjölskyldur sem þurfa á aðstoð að halda fyrir jólin. Bæjarráð samþykkir að styrkja jólasjóðinn um 500.000 kr. líkt og undanfarin ár.

  2. Bæjarstjórn, fundur 281 liður 1.4

    Fundargerðin „Bæjarráð - 642“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is