NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 246
28. október 2019, kl. 16:00 til 17:40, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Ívar Dan Arnarson, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 637 liður 14
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar nr. 246 frá 28.október 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 279 liður 7
Enginn tók til máls.
Fundargerð eigna-, skipulags-, og umhverfisnefndar nr. 246 frá 28. október 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Landshlutaáætlanir í skógrækt og lykilhlutverk sveitarfélaga í loftslagsmálum
Mál 1906106 Allur ferill málsins
Gestir fundarins eru Hrefna Jóhannesdóttir og Lárus Heiðarsson fulltrúar Skógræktarinnar ásamt Eydísi Ásbjörnsdóttur. Kynntar eru landshlutaáætlanir í skógrækt og lykilhlutverk sveitarfélaga í loftslagsmálum, framtíðarnotkun lands og fyrirkomulag byggðar.
-
2. 755 Heyklif - breyting á aðalskipulagi, ferðaþjónusta
Mál 1909021 Allur ferill málsins
Lögð fram skipulags- og matslýsing varðandi breytingu á aðalskipulagi vegna uppbyggingar á ferðaþjónustu við Heyklif við sunnanverðan Stöðvarfjörð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir skipulags- og matslýsingu fyrir sitt leyti. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarstjórnar.
-
3. 730 Búðareyri 25 - Umsókn um byggingarleyfi, tröppur
Mál 1910151 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Akkeris ehf, dagsett 24. október 2019, þar sem óskað er eftir leyfi til að setja forsteyptar tröppur og pall við austurhlið húss fyrirtækisins að Búðareyri 25 á Reyðarfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.
-
4. Meindýraeyðing í Nípunni
Mál 1805032 Allur ferill málsins
Lögð fram beiðni Sigurðar V. Jóhannessonar um leyfi til refa- og minkaveiða í Fólkvangi Neskaupstaðar dagsett 8. september 2019. Lögð fram umsögn Náttúrustofu Austurlands varðandi meindýraeyðingu í Fólkvangi Neskaupstaðar, dagsett 18. október 2019. Náttúrustofa telur ekki ástæðu til að veiða ref í Fólkvanginum en telur ekkert því til fyrirstöðu að þar sé veiddur minkur.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að minkur verði veiddur í Fólkvangi Neskaupstaðar.
Í samræmi við umsögn Náttúrustofu Austurlands felur nefndin umhverfisstjóra að vinna að stefnu um veiðar í Fólkvanginum.
-
5. Aðalfundarboð 2019 - Heilbrigðiseftirlit Austurlands
Mál 1910047 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar fundarboð aðalfundar Heilbrigðiseftirlits Austurlands sem haldinn verður á Hótel Bláfelli á Breiðdalsvík 30. október næstkomandi.