NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 245
21. október 2019, kl. 16:00 til 17:45, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Ívar Dan Arnarson, varaformaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Arnfríður Eide Hafþórsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 277 liður 3
Fundargerðir eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 244 og nr. 245, teknar til afgreiðslu saman.
Jón Björn Hákonarson vék af fundi við afgreiðslu liðar 3.8. og tók Eydís Ásbjörnsdóttir við stjórn fundarins.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 245 frá 21.október 2019, utan liðar 3.8., samþykkt með 9 atkvæðum.
Einar Már Sigurðarson tók til máls undir lið 3.8.
Liður 3.8. samþykktur með 8 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027
Mál 1810136 Allur ferill málsins
Gestur fundarins er Árni Geirsson sérfræðingur ráðgjafafyrirtækisins Alta.
Kynntur vinnuvefur eign-, skipulags- og umhverfisnefndar og fyrsti áfangi endurskoðunar Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027 sem felst í greiningu á þeim forsendum sem breyttar eru frá gildandi skipulagi ásamt gerð lýsingar.
-
2. Umsóknir í Framkvæmdasjóð Ferðamannastaða 2019
Mál 1909098 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar kostnaðaráætlun umhverfisstjóra vegna umsókna í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða og kostnað Fjarðabyggðar sem þeim kann að fylgja vegna hönnunar eða framkvæmda.
-
3. 22. Ársfundur Umhverfisstofnunar,náttúrverndarnefnda sveitarfélaga og náttúrustofa 2019
Mál 1910108 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar bréf Umhverfisstofnunar þar sem minnt er á 22. ársfund stofnunarinnar með náttúruverndarnefndum sveitarfélaga og forstöðumanna náttúrustofa sem haldinn verður 14. nóvember næstkomandi.
-
4. Umhverfisviðurkenning 2019
Mál 1907064 Allur ferill málsins
Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra um fyrirkomulag afhendingar umhverfisviðurkennigar Fjarðabyggðar 2019, dagsett 20. október 2019.
Umhverfisverðlaun verða afhent í Randulfs sjóhúsi föstudaginn 25. október næstkomandi klukkan 12:00.
-
5. Lokun urðunarstaðar í landi Rima í Mjóafirði
Mál 1702136 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Umhverfisstofnunar, dagsett 24.september 2019, er varðar lokun á urðunarstað í Mjóafirði. Óskað er eftir að samþykkt verði ábyrgðaryfirlýsing um að staðið verði við skyldur varðandi frágang og vöktun urðunarstaðarins.
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd felur umhverfis- og skipulagssviði og vinna málið áfram og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
6. Gjaldskrá félagsheimila 2020
Mál 1909154 Allur ferill málsins
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að gjaldskrá fyrir félagsheimili vegna 2020, hækki um 2,5% 1.janúar 2020. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs.
-
7. 735 Hátún 24 - Umsókn um endurnýjun á lóðaleigusamningi
Mál 1910076 Allur ferill málsins
Lögð fram umsókn Karls Gunnarssonar, dagsett 11. október 2019, þar sem óskað er eftir endurnýjun lóðarleigusamnings lóðar hans að Hátúni 24 á Eskifirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að lóðarleigusamningur verði endurnýjaður.
-
8. 740 Bakkavegur 5 - umsókn um stækkun lóðar
Mál 1908119 Allur ferill málsins
Lögð fram að nýju eftir grenndarkynningu lóðarumsókn SÚN, dagsett 30. ágúst 2019, þar sem sótt er um stækkun lóðarinnar við Bakkaveg 5 á Norðfirði til vesturs að göngustíg samsíða Bakkalæk. Gert er ráð fyrir að stækkun verði nýtt fyrir viðbyggingu við núverandi húsnæði á lóðinni. Leiksvæði á umræddu svæði hefur verið aflagt. Sjö athugasemdir bárust vegna grenndarkynningar. Lögð fram umsögn sviðsstjóra umhverfis- og skipulagssviðs vegna athugasemda, dagsett 19. október 2019.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur athugasemdir ekki þess eðlis að hafna beri umsókn um stækkun lóðar. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs að fenginni staðfestingu bæjarstjórnar á grenndarkynningu.
-
9. Fundargerðir Heilbrigðiseftirlits Austurlands 2019
Mál 1904005 Allur ferill málsins
Lögð fram til kynningar fundargerð 152. fundar Heilbrigðisnefndar sem haldinn var 15. október síðastliðinn.