Bréf frá leikskólastjórum á Austurlandi
Mál 1910069 Fyrst á dagskrá 14. október 2019, síðast 24. október 2019. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Upptaka af umræðu í bæjarstjórn 24. október 2019, frá 0:05:36 og 1 kafli til viðbótar í ferlinum
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
- Upptaka af umræðu
-
2019
Fræðslunefnd, fundur 75 liður 6
Fyrir liggur bréf frá leikskólastjórum á Austurlandi sem sent er til allra sveitar- og bæjarstjórna á Austurlandi. Í bréfinu segir m.a. "Við leikskólastjórnendur á Austurlandi viljum lýsa yfir áhyggjum okkar á stöðu mála í leikskólum á öllu svæðinu. Fjöldi menntaðra leikskólakennara á svæðinu er langt undir ásættanlegum mörkum og það gengur erfiðlega að ráða íslenskumælandi starfsfólk en einnig er áberandi skortur á starfsfólki yfir höfuð. Víða hefur ekki tekist að fullmanna leikskólana." Í bréfinu er síðan farið yfir stöðuna í hverjum skóla og minnt á lög um leikskóla þar sem segir m.a. "Að lágmarki 2/3 hlutar stöðugilda við kennslu, umönnun og uppeldi barna í hverjum leikskóla skulu teljast til stöðugilda leikskólakennara." Þá er minnst á langan skóladag nemenda, allt að 9 klukkustundum á dag, og mikilvægi góðrar vinnuaðstöðu fyrir jafnt starfsmenn sem nemendur. Í bréfinu er einnig borin saman aðstaða í leik-, grunn- og framhaldsskólum í tengslum við eitt leyfisbréf kennara, en lög þess efnis taka gildi frá og með næstu áramótum. Í bréfinu er minnst á mikilvægi þess að jafna aðstöðuna og þar segir m.a. "Stórt skref í þessu væri ef ákveðið væri að allir skólar leik-, grunn- sem og framhaldsskólar væru lokaðir milli jóla og nýárs. Svona áform væru til þess fallin að skapa okkur fjölskylduvæna sérstöðu í þessum landshluta en einnig gera það enn meira aðlaðandi fyrir starfsfólk að vinna hjá okkur. Við höfum áhyggjur af því að þegar lög um eitt leyfisbréf taka gildi í janúar 2020 munu enn fleiri leikskólakennarar fara úr störfum í leikskólunum og yfir í grunnskólana." Bréfinu lýkur með þessum orðum: "Leikskólastigið er mikilvægur hlekkur í skólastarfi landsins og því miður erum við sem sinnum því starfi hér á Austurlandi farin að upplifa að okkar starf sé ekki metið að verðleikum. Vonandi verður það sýnt í verki á næstu vikum og mánuðum að þetta er röng ályktun hjá okkur. Það er því okkar ósk að sveitastjórnarmenn taki höndum saman og vinni með okkur leikskólastjórnendum að bættu náms- og starfsumhverfi yngstu bæjarbúa okkar."
Lesa alla bókunina (212 orð til viðbótar)
Fræðslunefnd þakkar fyrir bréfið og tekur undir mikilvægi þess að nægilega margir leikskólakennarar starfi í leikskólunum og vinni þar við góðar aðstæður. Undanfarin ár hefur bæjarstjórn Fjarðabyggðar verið umhugað um að bæta vinnuaðstæður í leikskólum í Fjarðabyggð, má þar nefna nýlegan leikskóla á Fáskrúðsfirði, Kærabæ, nýjan leikskóla í Neskaupstað, Eyrarvelli, viðbyggingu við leikskólann Lyngholt á Reyðarfirði, sem tekin verður í notkun á næsta ári, nýja leikskóladeild í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla sem tekin verður í gagnið á næsta ári og fyrirhugaða stækkun leikskólans Dalborgar á Eskifirði, sem stefnt er að á kjörtímabilinu. Unnið hefur verið að því að bæta hljóðvist í skólunum og reglum um námsstyrki til stofnana Fjarðabyggðar hefur verið breytt þannig að þeir starfsmenn Fjarðabyggðar sem stunda nám í leikskólakennarafræðum fá aukinn styrk. Í fyrirliggjandi starfsáætlun Fjarðabyggðar, sem nú er unnið að, er gert ráð fjölgun skipulagsdaga í sex úr fimm og auknum stöðugildum til leikskólanna í Fjarðabyggð til að styðja við lærdómssamfélagið innan skólans og snemmtæka íhlutun í læsi. Tillagan gerir ráð fyrir auknum undirbúningstíma starfsmanna inni á deild og færri börnum á starfsmann í elsta árgangi. Með þessu er verið að vinna samkvæmt áherslum í nýrri fræðslu- og frístundastefnu Fjarðabyggðar og samningum um læsi. Þá mun fræðslunefnd taka til skoðunar lokun leikskóla milli jóla og nýárs. Vísað til bæjarráðs.
-
Bæjarráð, fundur 635 liður 15
Fyrir liggur bréf frá leikskólastjórum á Austurlandi sem sent er til allra sveitar- og bæjarstjórna á Austurlandi. Erindið hefur fengið ítarlega umfjöllun í fræðslunefnd. Bæjarráð þakkar erindið og tekur undir að leikskólastigið er mikilvægur hlekkur í skólastarfi landsins.
-
Bæjarráð, fundur 635 liður 22.6
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 75“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 277 liður 1.15
Fundargerðin „Bæjarráð - 635“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
Opinber fundargerð á fjardabyggd.is
Upptaka bæjarstjórnarfundar 277. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:05:36 að þakka erindið og tekur undir að leikskólastigi er mikilvæg hlekkur í skólastarfi starfsins en það er mikið áhyggjuefni hvað illa gengur að fá fólk til starfa í leikskólum og sérlega í fagmenntafólk þetta vandamál er ekki bara bundið við austurland heldur allt landið í heild
- 0:06:04 efriðís viljaði fleiri kveðja sem hljóðs
Upptaka bæjarstjórnarfundar 277. Tölva fann kaflann og tímasetningin getur skeikað. Myndbandið er sótt frá YouTube þegar þú ýtir á spila, ekki fyrr. Opna á YouTube
Sjálfvirk uppskrift af kaflanum
Tölva skrifaði þetta upp eftir hljóðinu. Villur eru algengar, einkum í nöfnum og tölum, og þetta er ekki orðrétt tilvitnun. Upptakan sjálf er heimildin.
- 0:35:28 sjötíu og fimm orðið laust um hana sigurð rólason uppi um orðið gerð svefn
- 0:35:56 hún er bara ekki nógu góð gengur mjög illa að manna leikskólana og við erum langt hroðja að hérna að vera með mönnun þar sem við viljum hafa hana og þar sem lög raunveru ja samkvæmt aðalámskrá þá eiga tveir þriðju starfsmannaleikskóm að vera kennarar faglærðir og núna þegar við erum að huga að því og erum að að hérna stefna það að
- 0:36:24 stefna það að grípa fyrr inn í málefnum barna sem eiga í erfiðleikum það er í svoköllu að snemmtaka íhlutun og svoköllu á austurlands líkan þá blasir við að forsetinnar til þess að hérna byrja snemma eru auðvitað pínu erfiðar þegar við höfum ekki nægilega margt fagfólk á leikskólanum og þetta er ekki bara vandamál hjá okkur heldur á landsvísu og þetta er eitthvað
- 0:36:52 og þetta er eitthvað sem ég hef miklar áhyggjur af og þegar fræðslunefnd fór yfir þetta bréf þá hérna kom það skýrt fram að það hafa allir allir áhyggjur úr stöðunni og hérna það þarf að grípa til einhverra ráða reykjavíkurborg fór í mikla vinnu og greiningu á því hvað er hægt að gera til að takast á þessa stöðu og skilaði um það mikilli skýrslu með þrjátíu og þremur aðgerðum sem voru lægir
- 0:37:20 átíu og þremur aðgerðum sem voru lagðar til til þess að bæta stöðuna við getum hugsanlega horft eitthvað í þá átt til þess athurfi ekki að finna upp hjólið og nota það til þess a þau byggja á en það er ljóstmála að það þarf í alvörunni að skoða það hvað er þetta að gera til þess a að bæta mönnun á leikskólunum og efla þeirra starfsemi það er hérna á fyrstu ævi
- 0:37:48 á fyrstu æviárunum fer fram mjög mikilvæg þróun á heilastarfsemi og það þarf ef því fleira fagfólk sem að vinna með börnin á þeim aldri því líklegra er að hún verði í lagi og hérna þannig að þessi fyrstu þrifar eru gífurlega mikilvæg og þetta eru skólastofnanir
- 0:38:16 skólastofnanir þetta eru ekki geymslustaðir fyrir börn og við þurfum einhverja svona hugvarpssbreytingu held ég bara samfélagslega til þess að einhvern veginn já glögg okkur betur á því til hvers leikskólar eru þannig að hérna ég fagna bara þessu bréfi og hérna og ég held að við þurfum að hérna taka efni þess alvarlega
- 0:38:44 bæjarstjóri forseti og getur bæjarfulltrúar tek undir það sem sigurður kom inn á og hérna þetta er auðvitað vond staða sem þarna er lýst í bréfinu
- 0:39:12 það sem þarna er lýst í bréfinu og auðvitað kannski getur maður af sama skapi sagt að hún dreki nýtt af nálinni það hefur verið viðvarandi undanfarin ár að það hefur væri erfitt að manna leikskólana og mikil starfsmannavelta í leikskólanum og það hefur auðvitað verið gripið til ýmissa aðgerða en ekkert af þeim hefur skilað þeim árangri sem við hefðum viljað sjá og bara til dæmis átak sem snýr að hljóðvist er gott dæmi en eflaust
- 0:39:40 þetta er gott dæmi en eflaust þarf að skoða þetta líka í kjarasamningsviðræðunum dettur nú svona helst í hug að það sé hægt að að koma einhvern veginn inn á menntunarkaflann í kjarasamningum ófaglærða og faglægðra leikskólakennara svo er eins og við komum með tillögu í fyrra bókun í tengslum við styttingu vinnuvikunnar í leikskólakunnara
- 0:40:08 við styttingu vinnuvikunnar í leikskólanum að það var svona liður í því að svona búa til meiri sveigjanleika og meiri aðlagandi vinnuaðstæður í leikskóla það er auðvitað mikið álag í leikskóalanum það er hérna þetta er streitumikil vinna og það var svonar liður í þý þá að búa til meirri sveigjanleka í skólakerfinu og stytting vinnuvikunar
- 0:40:36 og stytting vinnuvikunnar mundi þá miða að því að þessi sveigjanleiki væri tekinn út svona þegar að mesti álagspunkturinn er í leikskólanum að það væri hægt að mynda þennan sveigjanleika þegar úr því að er ekki jafnmikið álag yfir allan daginn og þessu var vel tekið af fræðslunefnd og ég held að þetta sé svona eitt af því sem við ættum að skoða áfram og þetta er svona eitt afþví sem manni dettur í huga við þa að búa til
- 0:41:04 á því sem manni dettur í huga við það búa til meira aðlagandi vinnuumhverfi því að þetta er eins og á sigurður kominn og gríðarlega mikilvægt starf sem þarna er unnið
-
Bæjarstjórn, fundur 277 liður 5.6
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 75“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.