Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2019

Sumarlokun leikskóla 2020

Mál 1910070 Fyrst á dagskrá 14. október 2019, síðast 24. október 2019. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.

Í heiti málsins: Skólar og fræðsla

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2019

    Fræðslunefnd, fundur 75 liður 8

    Fyrir liggur minnisblað um sumarlokun leikskóla. Í minnisblaðinu er í samræmi við starfsáætlun í fræðslumálum gert ráð fyrir fjögurra vikna sumarlokun eða 20 virkum dögum. þá kemur fram að sumarlokun leikskólanna verði stillt af þannig að sumarlokun leikskólanna fimm spanni í það minnsta tvo mánuði sumarsins. Lagt er til að sumarlokun leikskólanna sumarið 2020 verði þessi:

    Eyrarvellir Norðfirði

    18.06-15.07 báðir dagar meðtaldir

    Dalborg Eskifirði

    01.07-28.07 báðir dagar meðtaldir

    Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli

    Lesa alla bókunina (73 orð til viðbótar)

    13.07-10.08 báðir dagar meðtaldir

    Kæribær Fáskrúðsfirði

    13.07-10.08 báðir dagar meðtaldir

    Lyngholt Reyðarfirði

    20.07-17.08 báðir dagar meðtaldir

    Þá er athygli vakin á reglum um leikskóla í Fjarðabyggð, en samkvæmt þeim geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra, sex eða átta vikna sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn mánuð, einn og hálfan mánuð eða tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis.

    Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu, en mun jafnframt taka sumarlokun leikskóla 2021 til umræðu í vetur.

  2. Bæjarráð, fundur 635 liður 22.8

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 75“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is

  3. Bæjarstjórn, fundur 277 liður 5.8

    Fundargerðin „Fræðslunefnd - 75“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is