Endurnýjun á rekstrar- og uppbyggingarsamningum við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu 2020-2022
Mál 1908079 Fyrst á dagskrá 21. október 2019, síðast 24. október 2019. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn.
Í heiti málsins: Íþróttir og tómstundir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Bæjarráð, fundur 635 liður 16
Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að gerður verði nýr þriggja ára samningur við íþróttafélög í Fjarðabyggð sem reka eigin íþróttaaðstöðu. Skipting rekstrar- og uppbyggingarstyrkja til næstu þriggja ára verði með sama sniði og verið hefur frá árinu 2014 og hækki styrkir um 2,5% milli ára. Greiðsla og upphæð styrkjanna er háð því að íþróttafélögin efni sinn hluta samninganna. Vísað til bæjarráðs til staðfestingar. Bæjarráð er sammála að hækka styrkfjárhæðir um 2,5% frá 1.janúar 2020.
-
Bæjarstjórn, fundur 277 liður 1.16
Fundargerðin „Bæjarráð - 635“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.