Beiðni um umsögn vegna strenglagningar í Austdal við Seyðisfjörð
Mál 1907071 Fyrst á dagskrá 12. ágúst 2019, síðast 15. ágúst 2019. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 239 liður 3
Lögð fram beiðni Skipulagsstofnunar, dagsett 18. júlí 2019, um umsögn um hvort og á hvaða forsendum fyrirhuguð strenglagning um Austurdal í Seyðisfirði skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 2. viðauka laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að fyrirhuguð strenglagning sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum.
-
Bæjarráð, fundur 626 liður 8.3
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 239“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.