TALIS skýrsla Starfshættir og viðhorf kennara og skólastjóra á unglingastigi grunnskóla
Mál 1906094 Fyrst á dagskrá 21. ágúst 2019, síðast 29. ágúst 2019. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: Skólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Fræðslunefnd, fundur 72 liður 7
Fyrir liggur TALIS skýrsla Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD, en alls taka 48 þjóðir þátt í rannsókninni. Í rannsókninni eru kennarar og skólastjórar á unglingastigi grunnskóla spurðir um kennsluhætti, skólastarfið, starfskjör, eftirspurn eftir þjálfun og margt fleira. Á Íslandi voru allir skólastjórar og kennarar á unglingastigi í úrtaki rannsóknarinnar og var svörunin um 75%. Menntamálastofnun hefur tekið saman sérstaka skýrslu úr gögnum TALIS-rannsóknarinnar, þar sem fjallað er um helstu niðurstöður fyrir íslenskt skólakerfi og þær bornar saman við niðurstöður annarra þátttökuríkja, ekki síst hinna Norðurlandanna.
Lesa alla bókunina (133 orð til viðbótar)
Meðal þess sem einkennir unglingastig grunnskóla hérlendis í rannsókn Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) á 48 löndum er:
Vaxandi eftirspurn er eftir þjálfun í kennslu nemenda með fjölmenningarlegan bakgrunn.
Íslenskir kennarar og skólastjórar taka meiri þátt í starfsþróunarverkefnum en í samanburðarlöndum.
Agamál eru stærra viðfangsefni í íslensku skólakerfi en gerist í samanburðarlöndum.
Íslenskir kennarar eru óánægðari með sín laun en gerist í samanburðarlöndum, en í heildina eru 93% þeirra sáttir við starf sitt.
Auk ofangreindra niðurstaðna kemur m.a. fram að íslenskir kennarar telja sig betur undirbúna undir kennslu í þverfaglegri hæfni, þeir kenna að jafnaði um einni klukkustund meira í hverri viku, að stærð bekkja / kennsluhópa er í við minni en á hinum Norðurlöndunum og að íslenskir kennarar telja mjög mikilvægt að auka stuðning við nemendur af erlendum uppruna.
Lagt fram til kynningar.
-
Bæjarráð, fundur 627 liður 9.7
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 72“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 273 liður 2.7
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 72“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.