Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFélagsmálanefnd

Félagsmálanefnd, fundur 125

17. september 2019, kl. 16:00 til 18:00, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (4)

Fundinn sátu

  • Hjördís H. Seljan Þóroddsdóttir, formaður
  • Ásmundur Páll Hjaltason, varaformaður
  • Valdimar Másson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 275 liður 9

    Til máls tók Hjördís Helga Seljan Þóroddsdóttir.

    Fundargerð félagsmálanefndar, nr. 125 frá 17.september 2019, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfs- og fjárhagsáætlun félagsmálanefndar 2020

    Mál 1904135 Allur ferill málsins

    Lagður var fram rammi að fjárhagsáætlun fyrir málaflokk 02 Félagsþjónustu á árinu 2020 sem bæjarráð hefur úthlutað nefndinni sbr. meðfylgjandi bréf. Fjármálastjóri mætti á fund nefndarinnar og fylgdi bréfinu eftir. Fræðslustjóra falið að vinna áætlunina áfram með starfsfólki fjölskyldusviðs.

  2. 2. Landsfundur um jafnréttismál sveitarfélaga 4.-5. september 2019

    Mál 1907031 Allur ferill málsins

    Formaður félagsmálanefndar fór yfir helstu málefni sem tekin voru fyrir á landsfundi um jafnréttismál sveitarfélaga 4.-5.september síðastliðinn.

  3. 3. Framkvæmdaráð hjúkrunarheimilanna - 13

    Fundargerðin í heild

    Framlögð fundargerð 13. fundar framkvæmdaráðs hjúkrunarheimilanna. Fulltrúar félagsmálanefndar í framkvæmdarráði gerðu grein fyrir fundargerðinni. Félagsmálanefnd staðfestir fyrirliggjandi fundargerð.

    1. 3.1 Rekstur Hulduhlíðar 2019
    2. 3.2 Rekstur Uppsala 2019
    3. 3.3 Rekstur hjúkrunarheimila 2019
    4. 3.4 Starfs- og fjárhagsáætlun hjúkrunarheimila 2020
    5. 3.5 Félagsfundur SFV og samningar við SÍ
    6. 3.6 Umsóknir um framlög úr framkvæmdasjóði aldraðra 2019