Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 608

8. apríl 2019, kl. 08:30 til 12:55, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Dýrunn Pála Skaftadóttir, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri
  • Gunnar Jónsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarstjórn, fundur 267 liður 2

    Fundargerðir bæjarráðs teknar til umfjöllunar og afgreiðslu saman.

    Til máls tóku: Eydís Ásbjörnsdóttir, Pálína Margeirsdóttir, Ragnar Sigurðsson, Jón Björn Hákonarson, Einar Már Sigurðarson, Rúnar Már Gunnarsson.

    Fundargerð bæjarráðs frá 8. apríl 2019 staðfest með níu atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Fjarvarmaveita Reyðarfjarðar - Varmaendurvinnslukerfi Fjarðaál

    Mál 1902054 Allur ferill málsins

    Farið yfir stöðu verkefnis og framhald þess ásamt fleiri sameiginlegum málefnum sveitarfélagsins og fyrirtækisins.

  2. 2. Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana 2018 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1903150 Allur ferill málsins

    Trúnaðarmál.

    Ársreikningur Fjarðabyggðar og stofnana fyrir árið 2018 lagður fram sem trúnaðarmála ásamt drögum að endurskoðunarskýrslu sem jafnframt er trúnaðarmál.

    Bæjarráð vísar ársreikningi fyrir Fjarðabyggð og stofnanir til fyrri umræðu í bæjarstjórn 11. apríl nk. Ársreikningur verður undirritaður á fundi bæjarráðs fimmtudaginn 11. mars fyrir bæjarstjórnarfund.

  3. 3. Heilsuefling 65 ára og eldri í Fjarðabyggð

    Mál 1802096 Allur ferill málsins

    Farið yfir verkefni í heilsueflingu eldri aldusrshópa á Íslandi og þjónustu henni tengdri til heilsueflingar, aukinna lífsgæða og bættri nýtingu fjármagns.

    Vísað til félagsmálanefndar og íþrótta- og tómstundanefndar til kynningar. Málinu vísað til íþrótta- og tómstundafulltrúa til áframhaldandi vinnslu.

  4. 4. Rekstur málaflokka 2019 TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1904033 Allur ferill málsins

    Framlagt yfirlit yfir rekstur og framkvæmdir Fjarðabyggðar janúar - febrúar, launakostnað og skatttekjur fyrir janúar - mars 2019. Einnig kynnt yfirlit yfir laun í Fjarðabyggð 2013 - 2018.

  5. 5. Kauptilboð í Sólbakka 11 á Breiðdalsvík

    Mál 1903006 Allur ferill málsins

    Framlagt kauptilboð í fasteignina Sólbakka 11 í Breiðdal að upphæð 7,4 m.kr. Bæjarráð samþykkir kauptilboð og felur fjármálastjóra afgreiðslu málsins.

  6. 6. Samningur um rekstur tjaldsvæða í Fjarðabyggð

    Mál 1803041 Allur ferill málsins

    Vísað frá fundi bæjarráðs til frekari umræðu samningi um rekstur tjaldsvæðanna í Fjarðabyggð til fimm ára. Bæjarráð felur bæjarstjóra að bæta við ákvæðum í samning er varðar skyldur leigutaka á tjaldsvæðum.

    Bæjarráð samþykkir samningi með framkomnum breytingum og vísar honum til staðfestingar í bæjarstjórn.

  7. 7. Eignir Eskju við Strandgötu - Trúnaðarmál

    Mál 1811177 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað bæjarstjóra um skipulag miðbæjarins á Eskifirði auk ástandsskýrslu Strandgötu 39, sem unnin var fyrir Eskju. Jafnframt lögð fram til upplýsinga kynning Kömmu Daggar Gísladóttur frá því í maí 2016 og hugmyndavinna nema við Haskóla Íslands frá því í desember 2015, um framtíð og skipulag safnastarfs á Eskifirði. Bæjarráð felur bæjarstjóra og fjármálastjóra að annast samningaviðræður við Eskju á grundvelli minnisblaðs bæjarstjóra. Endanlegu samkomulagi vísað til samþykktar í bæjarstjórn.

  8. 8. Sumarnámskeið 2019

    Mál 1903029 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað íþrótta- og tómstundafulltrúa um fyrirkomulag sumarnámskeiða á Reyðarfirði árið 2019 en lagt er til að hafið verði tilraunaverkefni þar sem sveitarfélagið annist sumarnámskeið fyrir börn í júní, hluta úr degi, samfellt í fimm vikur. Bæjarráð samþykkir tillögur í minnisblaði og felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að innleiða verkefnið.

    Vísað til íþrótta- og tómstundanefndar til kynningar.

  9. 9. Aðalfundur Sparisjóðs Austurlands hf - 12.apríl 2019

    Mál 1904011 Allur ferill málsins

    Framlagt aðalfundarboð Sparisjóðs Austurlands sem haldinn verður föstudaginn 12. apríl kl. 16:00 í Safnahúsinu í Neskaupstað.

    Bæjarráð felur Karli Óttari Péturssyni bæjarstjóra að sækja fundinn f.h. Fjarðabyggðar, með fullt og ótakmarkað umboð.

  10. 10. Nefndaskipan Framsóknarflokks 2018-2022

    Mál 1904039 Allur ferill málsins

    Þuríður Lillý Sigurðardóttir tekur sæti aðalmanns í fræðslunefnd í stað Aðalbjargar Guðbrandsdóttur. Eydís Ósk Heimisdóttir tekur sæti varamanns í nefndinni.

  11. 11. Gjaldfrjálsar samgöngur ungmenna að 18 ára aldri

    Mál 1903031 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað SvAust er varðar gjaldfrjálsar samgöngur ungmenna að 18 ára aldri. Bæjarráð samþykkir að almenningsamgöngur verði gjaldfrjálsar fyrir ungmenni að 18 ára aldri innan Fjarðabyggðar eins og áður hefur verið fjallað um. Fjármálastjóra falið að útbúa viðauka vegna málsins en kostnaður nemur 500.000 kr. fram til 1.september 2019. Máli vísað til upplýsinga í ungmennaráði.

  12. 12. Fræðslunefnd - 68

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð fræðslunefndar nr. 68 frá 4.apríl 2019, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 12.1 Eskifjarðarskóli - nafnabreyting1903096
    2. 12.2 Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar1805211
    3. 12.3 Umhverfisstefna Fjarðabyggðar1704067
    4. 12.4 Styrktarsjóður EBÍ 20191903183
    5. 12.5 Skóladagatöl 2019-20201903066
    6. 12.6 Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð1808078
  13. 13. Barnaverndarfundargerðir 2019

    Mál 1902124 Allur ferill málsins

    Fundargerð barnaverndarnefndar nr. 98 frá 1.apríl 2019, lögð fram til umfjöllunar.