Fræðslunefnd, fundur 68
4. apríl 2019, kl. 16:30 til 18:10, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Sigurður Ólafsson, formaður
- Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
- Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
- Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gerður Ósk Oddsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Bryndís Guðmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi
- Þóroddur Helgason, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 608 liður 12
Fundargerð fræðslunefndar nr. 68 frá 4.apríl 2019, lögð fram til umfjöllunar.
Bæjarstjórn, fundur 267 liður 4
Enginn tók til máls.
Fundargerð fræðslunefndar frá 4. apríl sl. staðfest með níu atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Eskifjarðarskóli - nafnabreyting
Mál 1903096 Allur ferill málsins
Borist hefur til bæjarráðs beiðni skólastjóra Grunnskólans á Eskifirði um nafnabreytingu á skólanum. Nýtt nafn verði Eskifjarðarskóli. Bæjarráð hefur þegar tekið vel í beiðnina en vísaði henni til meðferðar og afgreiðslu í fræðslunefnd. Eins og fram kemur í bréfi skólastjóra hefur stjórn foreldrafélagsins fjallað um málið ásamt skólaráði og einnig hefur málið verið tekið fyrir á starfsmannafundi í Grunnskólanum á Eskifirði. Einnig kemur fram í bréfi skólastjóra að nafnið Eskifjarðarskóli komi fram í merki skólans. Allir þessir aðilar leggja til að nafni skólans verði breytt. Fræðslunefnd leggur til að nafni skólans verði breytt úr Grunnskólanum á Eskifirði í Eskifjarðarskóla og felur fræðslustjóra að tilkynna nafnabreytinguna til Þjóðskrár Íslands.
-
2. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar
Mál 1805211 Allur ferill málsins
Menningar- og nýsköpunarnefnd hefur vísað drögum að menningarstefnu til fræðslunefndar til kynningar og umfjöllunar. Fræðslunefnd fjallaði um stefnuna og lýsir ánægju sinni með hana.
-
3. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar
Mál 1704067 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur vísað drögum að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2018-2022 til fræðslunefndar til kynningar og umfjöllunar. Fræðslunefnd fjallaði um stefnuna og lýsir ánægju sinni með hana.
-
4. Styrktarsjóður EBÍ 2019
Mál 1903183 Allur ferill málsins
Fyrir liggur bréf frá Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands þar sem aðildarsveitarfélög EBÍ eru hvött til að skila inn umsókn vegna sérstakra framfaraverkefna sem snúa að athugunum eða rannsóknum á ýmsum þróunarþáttum í atvinnulífi, samgöngum, fræðslu- og menningarmálum. Fræðslustjóra er falið að vinna málið áfram.
-
5. Skóladagatöl 2019-2020
Mál 1903066 Allur ferill málsins
Fyrir liggja skóladagatöl leik-, grunn- og tónlistarskóla í Fjarðabyggð þar sem sést hvernig starfs-, skipulags- og vetrarfrídagar raðast niður á almanaksárið. Reynt er að samræma frídaga nemenda í hverjum byggðarkjarna eftir því sem kostur er og tekst það að mestu. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi skóladagatöl.
-
6. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð
Mál 1808078 Allur ferill málsins
Fræðslunefnd fór yfir samantekt úr hugmyndavinnu, sem gerð var á síðasta fundi starfshóps um endurskoðun fræðslu- og frístundastefnu sveitarfélagsins. Að hugmyndavinnunni komu fulltrúar nemenda í öllum leik- og grunnskólum, starfsmenn í leik-, grunn- og tónlistarskólum, ungmennaráð, starfsmenn félagsmiðstöðva og íþróttamiðstöðva og fulltrúar Fjarðaforeldra og íþróttafélaga í Fjarðabyggð, samtals um 500 einstaklingar. Næsti fundur starfshópsins verður eftir páska.