Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 67

13. mars 2019, kl. 16:30 til 18:30, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
  • Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður
  • Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Þóroddur Helgason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 605 liður 22

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 67 frá 13.mars 2019, lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 265 liður 5

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar frá 13. mars sl. staðfest með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. 255. mál til umsagnar frumvarp til laga um rétt barna sem aðstandendur, 255. mál.

    Mál 1902177 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna réttar barna sem aðstandenda. Fræðslunefnd gerir ekki athugasemdir við frumvarpið.

  2. 2. Kennslutímamagn grunnskóla skólaárið 2019-2020

    Mál 1903024 Allur ferill málsins

    Til umræðu var kennslutímamagn grunnskólanna í Fjarðabyggð fyrir skólaárið 2019-2020. Við fjárhagsáætlunargerð fyrir árið 2019 sem unnin var í september og október var gengið út frá ákveðnu tímamagni miðað við fyrirsjáanlegan nemendafjölda. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi kennslutímaúthlutun.

  3. 3. Niðurstöður úr Skólavoginni

    Mál 1311034 Allur ferill málsins

    Farið var yfir nýjar upplýsingar sem fram koma í Skólavoginni, endanlegar rekstrarupplýsingar leikskóla fyrir árið 2017 og samræmd könnunarpróf 2017-2018 og nemendakönnun 6.-10. bekkjar 2018-2019. Farið er yfir niðurstöður í hverjum skóla fyrir sig og niðurstöður nýttar til þess að bæta skólastarfið.

  4. 4. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð

    Mál 1808078 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri greindi frá hugmyndafundum sem eru í gangi meðal nemenda og starfsmanna í leik-, grunn- og tónlistarskólum, hjá starfsmönnum félagsmiðstöðva, íþróttamiðstöðva og fulltrúa foreldrafélaga í Fjarðabyggð og fulltrúa íþróttafélaga og eldri borgara. Næsti fundur í stefnumörkunarvinnu er 27. mars og þá verður farið yfir afrakstur hugmyndafundanna.