Eskifjarðarskóli - nafnabreyting
Mál 1903096 Fyrst á dagskrá 18. mars 2019, síðast 11. apríl 2019. 5 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Bæjarstjórn, Fræðslunefnd.
Í heiti málsins: EskifjörðurSkólar og fræðsla
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Bæjarráð, fundur 605 liður 1
Beiðni skólastjóra Grunnskóla Eskifjarðar um nafnabreytingu á skólanum. Nýtt nafn verði Eskifjarðarskóli.
Bæjarráð tekur vel í beiðnina en vísar henni til meðferðar og afgreiðslu í fræðslunefnd.
-
Bæjarstjórn, fundur 265 liður 2.1
Fundargerðin „Bæjarráð - 605“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Fræðslunefnd, fundur 68 liður 1
Borist hefur til bæjarráðs beiðni skólastjóra Grunnskólans á Eskifirði um nafnabreytingu á skólanum. Nýtt nafn verði Eskifjarðarskóli. Bæjarráð hefur þegar tekið vel í beiðnina en vísaði henni til meðferðar og afgreiðslu í fræðslunefnd. Eins og fram kemur í bréfi skólastjóra hefur stjórn foreldrafélagsins fjallað um málið ásamt skólaráði og einnig hefur málið verið tekið fyrir á starfsmannafundi í Grunnskólanum á Eskifirði. Einnig kemur fram í bréfi skólastjóra að nafnið Eskifjarðarskóli komi fram í merki skólans. Allir þessir aðilar leggja til að nafni skólans verði breytt. Fræðslunefnd leggur til að nafni skólans verði breytt úr Grunnskólanum á Eskifirði í Eskifjarðarskóla og felur fræðslustjóra að tilkynna nafnabreytinguna til Þjóðskrár Íslands.
-
Bæjarráð, fundur 608 liður 12.1
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 68“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.
-
Bæjarstjórn, fundur 267 liður 4.1
Fundargerðin „Fræðslunefnd - 68“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.