Ályktun sameiginlegs fundar vegna Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði
Mál 1903057 Fyrst á dagskrá 18. mars 2019, síðast 25. mars 2019. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Í heiti málsins: Íþróttir og tómstundir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2019
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 228 liður 6
Lögð fram til kynningar fundargerð fundar rekstraraðila Skíðasvæðinsins í Oddsskarði, Skíðafélags Fjarðabyggðar, Brettafélags Fjarðabyggðar, bæjarstjóra, atvinnu- og þróunarstjóra og íþrótta- og tómstundagulltrúa, dagsett 11. mars 2019. Rekstraraðili ásamt skíða- og brettafélagi telja að það þurfi að ráðast sem fyrst í gerð snjógirðingar fyrir æfingasvæðið, sem og landmótun og grjóttínslu fyrir syðri bakkann auk þess að bæta lýsingu fyrir æfingabakkana og topplyftu. Fundurinn leggur það til við sveitarfélagið að farið verði sem fyrst í þessar framkvæmdir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar erindinu til fjárhagsáætlunargerðar næsta árs.
-
Bæjarráð, fundur 606 liður 20.6
Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 228“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.