Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd

Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 12

29. apríl 2019, kl. 17:00 til 18:15, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Magni Þór Harðarson, formaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
  • Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Anna Þórhildur Kristmundsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður

Dagskrá

  1. 1. Endurskoðun Menningarstefnu Fjarðabyggðar

    Mál 1805211 Allur ferill málsins

    Fastanefndir hafa fjallað um menningarstefnuna og bárust engar athugasemdir við efni hennar. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir menningarstefnu Fjarðabyggðar og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.

  2. 2. Hús frístunda

    Mál 1901070 Allur ferill málsins

    Farið var yfir stöðu mála vegna hús frístundanna sem fyrirhugað er að setja á laggirnar í Egilsbúð í Neskaupstað.

  3. 3. Umsókn um styrki til menningarmála

    Mál 1903188 Allur ferill málsins

    Beiðni Einars Ágústs Víðissonar um styrk vegna útgáfu á tónlist. Menningar- og nýsköpunarnefnd þakkar góða umsókn en þar sem styrkbeiðnir eru að öllu jöfnu afgreiddar á fyrri hluta árs, frestar nefndin ákvörðun um veitingu styrks. Nefndin felur forstöðumanni stjórnsýslu að vera í sambandi við styrkbeiðanda og upplýsa hann um framhald málsins.

  4. 4. Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýskopunarnefndar 2020

    Mál 1904132 Allur ferill málsins

    Undirbúningur fjárhagsáætlunargerðar 2020. Kaflar starfsáætlunar, breytingar á forsendum og umhverfi og verkefnum teknir til umræðu. Farið var yfir starfsáætlun 2019.

  5. 5. Stefnumótun í ferðaþjónustu

    Mál 1811077 Allur ferill málsins

    Lagt fram minnisblað upplýsinga- og kynningarfulltrúa varðandi vinnu við gerð ferðamálastefnu Fjarðabyggðar.