Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd

Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 7

12. nóvember 2018, kl. 17:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Magni Þór Harðarson, formaður
  • Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
  • Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
  • Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
  • Anna Þórhildur Kristmundsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Kristín Arna Sigurðardóttir, embættismaður
  • Valgeir Ægir Ingólfsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 589 liður 24

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 7 frá 12.nóvember 2018, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Menningarstefna Fjarðabyggðar

    Mál 1805211 Allur ferill málsins

    Fyrsta umræða um endurskoðun menningarstefnu Fjarðabyggðar. Lagt fram minnisblað forstöðumanns menningarstofu. Forstöðumaður menningarstofu fór yfir þær áherslur sem hún telur mikilvægar og hvernig best væri að byggja ofan á þá vinnu, sem unnin var þegar stefnan var mótuð í upphafi. Rætt um að stefnan verði einfölduð og gerð aðgengilegri. Menningar- og nýsköpunarnefnd felur forstöðumanni menningarstofu að leggja fyrir nefndina í byrjun desember, tillögur um endurskoðun menningarstefnu.

  2. 2. Græn atvinnustarfsemi

    Mál 1810030 Allur ferill málsins

    Umræða um græna atvinnustarfsemi og valkosti sem geta fallið að nýsköpun í samfélaginu og atvinnulífinu í Fjarðabyggð. Minnisblað atvinnu- og þróunarstjóra lagt fram. Nefndin telur, á grundvelli minnisblaðs, að fyrsta skref í átt að því að laða að græna atvinnustarfsemi til sveitarfélagsins, þurfi sveitarfélagið að móta sér umhverfisstefnu. Menningar- og nýsköpunarnefnd óskar eftir minnisblaði frá umhverfisstjóra um stöðu vinnu við umhverfisstefnu.

  3. 3. Minningarskjöldur um Richard Long (1783-1837)

    Mál 1810185 Allur ferill málsins

    Framlagt erindi Þórs Jakobssonar er varðar uppsetningu á skildi til minningar um Richard Long. Bæjarráð tók vel í erindið og vísaði því til menningar- og nýsköpunarnefndar. Menningar- og nýsköpunarnefnd óskar eftir áliti skipulags- og byggingarfulltrúa á hugmyndum um staðsetningu. Tekið fyrir á næsta fundi.

  4. 4. Tónlistarmiðstöð Austurlands - 2018

    Mál 1810104 Allur ferill málsins

    Skipan tveggja fulltrúa á aðalfund Tónlistarmiðstöðvar Austurlands. Menningar- og nýsköpunarnefnd felur Körnu og Gunnlaugi Sverrissyni að sækja aðalfund.

  5. 5. Ferðasumarið 2018 - Skýrsla

    Mál 1811045 Allur ferill málsins

    Skýrsla um ferðasumarið 2018 lögð fram til kynningar. Menningar- og nýsköpunarnefnd óskar eftir upplýsingum um stöðu vinnu við mótun stefnu í málefnum ferðaþjónustunnar.

  6. 6. Safnanefnd - 4

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð safnanefndar, nr. 4 frá 6.nóvember 2018, samþykkt með fimm atkvæðum.

    1. 6.1 Vettvangsheimsókn í Íslenska stríðsárasafnið1810007