NefndirMenningar- og nýsköpunarnefnd
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 6
22. október 2018, kl. 17:00 til 18:33, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Magni Þór Harðarson, formaður
- Jón Kristinn Arngrímsson, varaformaður
- Elva Bára Indriðadóttir, aðalmaður
- Kristinn Þór Jónasson, aðalmaður
- Anna Þórhildur Kristmundsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 586 liður 47
Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 6 frá 22.október 2018, lögð fram til umfjöllunar og afgreiðslu.
Dagskrá
-
1. Starfs- og fjárhagsáætlun bæjarráðs 2019
Mál 1809015 Allur ferill málsins
Bæjarráð vísaði starfsáætlun atvinnumála til menningar- og nýsköpunarnefndar til upplýsinga. Farið yfir starfs- og fjárhagsáætlun og áherslur í rekstri málaflokks atvinnumála, fyrir árið 2019.
-
2. Gjaldskrá bókasafna 2019
Mál 1810060 Allur ferill málsins
Vísað frá Safnanefnd. Tillaga að gjaldskrá fyrir bóksöfnin vegna 2019.
Safnanefnd leggur til tvær breytingar á gjaldskrá. Nr. 1 - Í liðnum árgjald verði skilgreining á börnum og unglingum hækkuð úr 16 árum í 18 ár. Nr. 2 - Árskort gildi á öllum bókasöfnunum sex: Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Fáskrúðsfirði - Stöðvarfirði - Breiðdal. Tillögu vísað til menningar- og nýsköpunarnefndar. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti tillögur safnanefndar og jafnframt að nokkrir liðir í gjaldskrá fyrir bókasöfnin vegna 2019 verði hækkaðir um 100 kr. þar sem gjaldskrá bókasafna hefur ekki hækkað frá árinu 2015. Gjaldskrá vísað til samþykktar í bæjarráði.
-
3. Gjaldskrá safna 2019 og 2020
Mál 1810080 Allur ferill málsins
Framlögð tillaga forstöðumanns safnastofnunar að gjaldskrá fyrir minjasöfn 2020. Safnanefnd samþykkti að leggja til við menningar- og nýsköpunarnefnd að gjaldskrá safna á árinu 2020 verði óbreytt frá árinu 2019. Menningar- og nýsköpunarnefndar samþykkir tillögu safnanefndar og vísar staðfestingu gjaldskrár til bæjarráðs.
-
4. Samþykkt fyrir tónlistarmiðstöð Austurlands - 2018
Mál 1810104 Allur ferill málsins
Samþykkt fyrir Tónlistarmiðstöð Austurlands, er samþykkt var í lok september, lögð fram til kynningar. Sameiginlegur fundur stjórnar Tónlistarmiðstöðvar og menningar- og nýsköpunarnefndar verður haldinn fyrir lok ársins.
-
5. Reglur um menningarstyrki 2018
Mál 1711145 Allur ferill málsins
Endurbættar reglur um menningarstyrki lagðar fram til samþykktar. Menningar- og nýsköpunarnefnd samþykkir breytingar á reglum um menningarstyrki og vísar þeim til staðfestingar bæjarráðs.
-
6. Söngleikur - umsókn um styrk til Menningar-og nýsköpunarnefndar
Mál 1810013 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar beiðni Djúpsins um styrk vegna uppsetningar á söngleiknum Mamma Mía. Vísað til styrkúthlutana í byrjun árs 2019.
-
7. Leiksýninginn Rauðhetta
Mál 1810121 Allur ferill málsins
Beiðni Leikhópsins Lottu um fyrirgreiðslu og styrk vegna uppsetningar á leikriti í mars 2019. Vísað til styrkúthlutana í byrjun árs 2019.
Menningar- og nýsköpunarnefnd óskar jafnframt eftir að kannað verði hvort leikhópurinn gæti komið inn í skólana og kynnt starfsemi sína fyrir nemendum.
-
8. Menningardagur í Breiðdal - Umsókn um styrk
Mál 1810148 Allur ferill málsins
Áhugahópur um menningu í Breiðdal óskar eftir styrk vegna menningardags 27.október nk. Menningar- og nýsköpunarnefnd tekur vel í umsóknina og telur mikilvægt að styrkja menningarviðburði í öllum bæjarkjörnum. Nefndin hefur þó ekki fjármagn á fjárhagsáætlun 2018 til að veita styrk og vísar því erindi til bæjarráðs og leggur til að Menningardagur í Breiðdal verði styrktur um 200.000.
-
9. Þjóðleikur 2018 - samstarf við MMF
Mál 1810102 Allur ferill málsins
Samningur vegna Þjóðleiks 2019 lagður fram til upplýsinga.
-
10. Safnanefnd - 2
Fundargerð safnanefndar nr. 2 frá 2.október 2018, samþykkt með fimm atkvæðum.
- 10.1 Vettvangsheimsókn í Safnahúsið1810007
-
11. Safnanefnd - 3
Fundargerð safnanefndar nr. 3 frá 16.október 2018, samþykkt með fimm atkvæðum.
- 11.1 Vettvangsheimsóknir Safnanefndar1810007
- 11.2 Starfs- og fjárhagsáætlun menningar- og nýsköpunarnefndar 20191809013
- 11.3 Niðurfelling forkaupsréttar Fjarðabyggðar á Læknishúsinu á Fáskrúðsfirði1808076
- 11.4 Stofnun Safnaráðs Neskaupstaðar - gögn síðan 20081401192
- 11.5 Aðild Ljósmyndasafns Fjarðabyggðar að Sarpi1810096
- 11.6 Ritun sögu Fáskrúðsfjarðar 20181802082
- 11.7 Gjaldskrá safna 2019 og 20201810080
- 11.8 Gjaldskrá bókasafna 20191810060