Menningardagur í Breiðdal - Umsókn um styrk
Mál 1810148 Fyrst á dagskrá 22. október 2018, síðast 29. október 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Menningar- og nýsköpunarnefnd.
Í heiti málsins: Breiðdalsvík og BreiðdalurMenning og söfnStyrkir
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2018
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 6 liður 8
Áhugahópur um menningu í Breiðdal óskar eftir styrk vegna menningardags 27.október nk. Menningar- og nýsköpunarnefnd tekur vel í umsóknina og telur mikilvægt að styrkja menningarviðburði í öllum bæjarkjörnum. Nefndin hefur þó ekki fjármagn á fjárhagsáætlun 2018 til að veita styrk og vísar því erindi til bæjarráðs og leggur til að Menningardagur í Breiðdal verði styrktur um 200.000.
-
Bæjarráð, fundur 586 liður 13
Vísað frá menningar- og nýsköpunarnefnd erindi áhugahóps um menningu í Breiðdal en óskað er eftir styrk vegna menningardags 27.október nk. Menningar- og nýsköpunarnefnd tók vel í umsóknina á fundi 22.október og telur mikilvægt að styrkja menningarviðburði í öllum bæjarkjörnum. Nefndin hefur þó ekki fjármagn á fjárhagsáætlun 2018 til að veita styrk og vísar því erindi til bæjarráðs. Nefndin leggur til að Menningardagur í Breiðdal verði styrktur um 200.000 kr. til að jafnræðis sé gætt við úthlutun styrkja til bæjarhátíða í sveitarfélaginu.
Bæjarráð samþykkir að veita 200.000 kr. styrk.