Safnanefnd, fundur 4
30. október 2018, kl. 16:00 til 17:20, í Molanum. Fundargerð ritaði Pétur Sörensson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)
Fundinn sátu
- Jón Björn Hákonarson, formaður
- Kamma Dögg Gísladóttir, varaformaður
- Sævar Guðjónsson, aðalmaður
- Sigríður Hrönn Gunnarsdóttir, aðalmaður
Starfsmenn
- Pétur Þór Sörensson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Menningar- og nýsköpunarnefnd, fundur 7 liður 6
Fundargerð safnanefndar, nr. 4 frá 6.nóvember 2018, samþykkt með fimm atkvæðum.
Bæjarráð, fundur 589 liður 25
Fundargerð safnanefndar, nr. 4 frá 30.október 2018, lögð fram til umfjöllunar.
Dagskrá
-
1. Vettvangsheimsókn í Íslenska stríðsárasafnið
Mál 1810007 Allur ferill málsins
Formaður nefndar kynnti nefndarmönnum stöðu söguritunar í upphafi fundar.
Þá var farið yfir málefni Íslenska stríðsárasafnsins, safnið og húsakynni safnsins skoðuð. Forstöðumaður kynnti nefndarmönnum starfsemi safnsins.
Þá var farið yfir nauðsyn þess að skipuleggja safnasvæði Stríðsárasafnsins og var formanni safnanefndar falið að ræða við formann ESU og skipulags- og byggingafulltrúa um undirbúning þess verkefnis og leggja fyrir safnanefnd að nýju. Einnig var forstöðumanni Safnastofnunar falið að taka saman gögn um gestafjölda á söfnum Fjarðabyggðar á liðnu sumri og leggja fyrir næsta fund safnanefndar sem lið í undirbúningi að stefnumótun fyrir söfnin.