Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 589

19. nóvember 2018, kl. 08:30 til 11:45, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Jens Garðar Helgason, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Rekstur málaflokka 2018 - TRÚNAÐARMÁL

    Mál 1805053 Allur ferill málsins

    Framlagt málaflokkayfirlit og fjárfestingayfirlit fyrir janúar - september 2018, skatttekjur og launakostnað fyrir janúar - október 2018 ásamt deildayfirlitum nokkurra málaflokka fyrir tímabilið janúar - september 2018.

  2. 2. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2019 - trúnaðarmál

    Mál 1808019 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að breytingum á fjárhagsáætlun 2019 - 2022 til síðari umræðu.

    Endanleg tillaga að heildar fjárhagsáætlun áranna 2019 - 2022 verður lögð fyrir bæjarráð til afgreiðslu mánudaginn 26. nóvember og til umfjöllunar við síðari umræðu í bæjarstjórn 29. nóvember. Bæjarráð samþykkir tillögur í minnisblaði fjármálastjóra og felur honum að útfæra áætlun í samræmi við umræður á fundinum.

  3. 3. Starfs- og fjárhagsáætlun ESU-nefndar í A hluta 2019

    Mál 1809019 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt starfs- og fjárfestingaráætlun ársins 2019 og vísar henni til afgreiðslu bæjarráðs. Vísað til fjárhagsáætlunarvinnu.

    Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins lýsir yfir vonbrigðum með að framkvæmdir við leikskólanna á Eskifirði hefjist ekki fyrr en árið 2021.

    Meirihluti bæjarráðs minnir á að framkvæmdaáætlun sveitarfélagsins til næstu fjögurra ára er endurskoðuð á hverju ári með hliðsjón af framgangi annarra verka. Nú er að hefjast gerð viðbyggingar leikskólans á Reyðarfirði og mun gerð viðbyggingar leikskólans á Eskifirði fylgja í kjölfarið. Á því er engin breyting á fyrri stefnu bæjarstjórnar.

  4. 4. Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2019

    Mál 1808161 Allur ferill málsins

    Á fundi hafnarstjórnar Fjarðabyggðar 12. nóvember 2018 var gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna fyrir árið 2019 samþykkt og vísað til staðfestingar í bæjarráði. Bæjarráð vísar gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna til áframhaldandi umræðu á næsta fundi bæjarráðs.

  5. 5. Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 2019

    Mál 1810072 Allur ferill málsins

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, gjaldskrá fyrir Hitaveitu Fjarðabyggðar vegna 2019. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs. Heilt yfir hækkar gjaldskráin um 2,9%. Bæjarráð samþykkir gjaldskrá Hitaveitu Fjarðabyggðar.

    Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt til að gjaldskrá hitaveitu lækki um 5% líkt og gert var við síðustu fjárhagsáætlun og þar af leiðandi greiðir atkvæði á móti hækkun á gjaldskrá Hituveitu Fjarðabyggðar.

    Meirihluti bæjarráðs, fulltrúar Fjarðalista og Framsóknarflokks, vísar til bókunar sinnar frá síðasta fundi bæjarráðs.

  6. 6. Fjölskylduþjónusta Austurlands

    Mál 1811005 Allur ferill málsins

    Inga Rún Sigfúsdóttir fjölskylduráðgjafi frá Fjölskylduþjónustu Austurlands kom á fund bæjarráðs og kynnti starfsemi fyrirtækisins. Bæjarráð lýsir yfir ánægju með að þessi þjónusta standi til boða í sveitarfélaginu og felur bæjarstjóra að fara yfir hvernig þjónustan nýtist sveitarfélaginu.

  7. 7. Leiðbeinandi verklagsreglur um gerð viðauka við fjárhagsáætlanir

    Mál 1811083 Allur ferill málsins

    Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefur gefið út að tillögu Reikningsskila- og upplýsinganefndar, leiðbeinandi verklagsreglur um gerð viðauka við fjárhagsáætlanir sveitarfélaga. Lagt fram til kynningar.

  8. 8. Ný reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga í samráðsgátt til umsagnar

    Mál 1811044 Allur ferill málsins

    Lögð fram til umsagnar drög að nýrri reglugerð um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. Vísað til yfirferðar hjá bæjarstjóra og fjármálastjóra.

  9. 9. Breyttur opnunartími bæjarskrifstofu

    Mál 1604148 Allur ferill málsins

    Kynning á breyttum opnunartíma bæjarskrifstofu frá 1.desember nk. Bæjarráð samþykkir að bæjarskrifstofa og skiptiborð verði opin alla virka daga frá 10:00 - 16:00.

  10. 10. Þorrablót Reyðfirðinga 2019 - afnot af íþróttahúsi

    Mál 1811095 Allur ferill málsins

    Beiðni Þorrablótsnefndar Reyðfirðinga, um afnot af Íþróttahúsinu á Reyðarfirði undir þorrablót í janúar 2019. Bæjarráð samþykkir afnot með sama hætti og síðasta ár.

  11. 11. Viðbygging við leikskólann Lyngholt

    Mál 1611029 Allur ferill málsins

    Lögð fram fundargerð vegna opnunar tilboða í viðbyggingu við Leikskólann Lyngholt á Reyðarfirði, frá 29. október 2018. Tilboð bárust frá Launafli ehf og MVA ehf. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd leggur til að hagkvæmasta tilboðinu verði tekið í verkið "viðbygging leikskólans Lyngholt" og vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir að gengið verði til samninga við Launafl skv. frávikstilboði, en það tilboð er hagkvæmasta tilboð, vegna viðbyggingar við Leikskólann Lyngholt.

    Fulltrúi Miðflokksins vill hafna öllum tilboðum í verkið. Þess í stað verði verkið boðið aftur út í mars 2019 og það hefjist í maí 2019.

  12. 12. 735 Ystidalur 10-12 -umsókn um lóð

    Mál 1811070 Allur ferill málsins

    Lögð fram lóðarumsókn Og sona / Ofurtólið ehf, dagsett 8. nóvember 2018, þar sem sótt er um lóðina við Ystadal 10-12 á Eskifirði undir raðhús. Jafnframt er óskað eftir að deiliskipulagi Dals 2 verði breytt þannig að hægt verði að byggja raðhús með þremur íbúðum í stað parhúss.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Að fengnu samþykki bæjarráðs mun breyting deiliskipulags verða grenndarkynnt íbúum Ystadals 2 og 4 og Árdals 1, 3, 5 og 7. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðarinnar við Ystadal 10-12 og breytingu á deiliskipulagi Dals 2.

  13. 13. Fyrirspurn um lóðir á Reyðarfirði og Eskifirði

    Mál 1802071 Allur ferill málsins

    Lagt fram erindi Þorsteins Erlingssonar f.h. Og sona ehf, dagsett 5. nóvember 2018, þar sem könnuð er afstaða til viljayfirlýsinga við lóðarúthlutanir eins og fyrr á þessu ári. Óskað er eftir lóðunum við Brekkugerði 5 og við Búðarmel 6d og 6e á Reyðarfirði og lóðunum við Árdal 6-8, Miðdal 17-19 og Árdal 18-20 á Eskifirði. Jafnframt er óskað upplýsinga um hvort sama fyrirkomulag verði á innheimtu gatnagerðargjalda á næsta ári og nú er.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, að viljayfirlýsing sem gerir ráð fyrir að lóðirnar verði teknar frá, verði gerð til eins árs. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs. Tillaga nefndarinnar vegna gjaldskrár gatnagerðargjalda bíður endanlegrar afgreiðslu bæjarstjórnar. Bæjarráð samþykkir lóðaúthlutanir miðað við framangreindar forsendur.

  14. 14. Búfjárhald og lausaganga stórgripa

    Mál 1811014 Allur ferill málsins

    Vísað til umfjöllunar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar frá landbúnaðarnefnd. Landbúnaðarnefnd hefur vísað frá drögum að banni við lausagöngu stórgripa í Fjarðabyggð og leggur til að unnin verði búfjársamþykkt fyrir Fjarðabyggð.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd hefur jafnframt samþykkt, fyrir sitt leyti, að búfjársamþykkt verði unnin fyrir Fjarðabyggð. Endanlegri afgreiðslu er vísað til bæjarráðs. Bæjarráð staðfestir ákvarðanir landbúnaðarnefndar og eigna- skipulags- og umhverfisnefndar og felur umhverfisstjóra að hefja vinnu við gerð búfjársamþykktar fyrir Fjarðabyggð. Bæjarráð leggur áherslu á að kynna þarf inntak samþykktar fyrir búfjáreigendum áður en samþykkt tekur gildi.

  15. 15. Viðbragðsáætlun Fjarðabyggðahafna vegna mengunar 2018

    Mál 1811006 Allur ferill málsins

    Á fundi hafnarstjórnar Fjarðabyggðar 12. nóvember 2018 var Viðbragðsáætlun Fjarðabyggðahafna vegna mengunaróhappa samþykkt. Áætluninni var vísað til staðfestingar í bæjarráði. Bæjarráð samþykkir viðbragðsáætlun vegna mengunaróhappa. Vísað til samþykktar í bæjarstjórn.

  16. 16. Tindar og toppar á ensku

    Mál 1811102 Allur ferill málsins

    Beiðni um 250.000 kr. styrk vegna útgáfu á bókinni 101 Austurland á ensku. Bæjarráð getur ekki orðið við beiðni bréfritara.

  17. 17. Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austurlands 2018

    Mál 1805082 Allur ferill málsins

    Fundargerðir Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 29.október og 12.nóvember 2018, lagðar fram til kynningar. Vísað til safnanefndar og menningar- og nýsköpunarnefndar.

  18. 18. Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga bs. 19. nóvember

    Mál 1811037 Allur ferill málsins

    Skipan fulltrúa á aðalfund Héraðsskjalasafns Austfirðinga. Bæjarráð felur Pétri Sörenssyni að sækja fundinn. Bæjarráð getur ekki samþykkt beiðni Héraðsskjalasafnsins um aukið stöðugildi við safnið.

  19. 19. Tillaga að breytingu á reglum um ferðakostnað starfsmanna Fjarðabyggðar

    Mál 1811106 Allur ferill málsins

    Framlögð endurnýjuð tillaga að reglum um ferðakostnað starfsmanna Fjarðabyggðar með smávægilegri breytingu á 11. gr. reglnanna. Bæjarráð samþykkir breytingu á reglum um ferðakostnað starfsmanna.

  20. 20. Umsókn um styrk vegna starfsemi UÍA á árinu 2019

    Mál 1811108 Allur ferill málsins

    Bréf Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands er varðar starfsemi sambandsins og íbúaframlag á árinu 2019 líkt og verið hefur undanfarin ár. Framlag til UÍA er á fjárhagsáætlun næsta árs.

  21. 21. Innleiðing nýrra laga um félagsþjónustu-upplýsingar um stöðu mála í lok okt.2018

    Mál 1811096 Allur ferill málsins

    Við 42. gr. laga um félagsþjónstu er að finna nýja málsgrein sem er svohljóðandi:

    "Í hverju sveitarfélagi, eða í sveitarfélögum sem eiga samstarf um þjónustu við fatlað fólk, skal starfa formlegur samráðsvettvangur er nefnist samráðshópur um málefni fatlaðs fólks, þar sem fjallað er um þjónustu við fatlað fólk og framkvæmd og þróun þjónustunnar. Í samráðshópnum skulu að lágmarki sitja þrír fulltrúar kosnir af sveitarstjórn að loknum sveitarstjórnarkosningum og þrír fulltrúar tilnefndir af hagsmunasamtökum fatlaðs fólks. Eigi tvö eða fleiri sveitarfélög samstarf um þjónustu við fatlað fólk skulu viðkomandi sveitarfélög og hagsmunasamtök fatlaðs fólks á þjónustusvæðinu koma sér saman um samsetningu hópsins." Huga þarf að formlegri skipun í samráðshópinn. Vísað til félagsmálanefndar til afgreiðslu.

  22. 22. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 219

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 219 frá 12.nóvember 2018, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 22.1 XI. Umhverfisþing, föstudaginn 9. nóvember 20181811076
    2. 22.2 21. Ársfundur Umhverfisstofnunar,náttúrverndarnefnda sveitarfélaga og náttúrustofa 20181810040
    3. 22.3 Fólkvangur Neskaupstaðar - styrkfé, hönnun, framkvæmdir1804020
    4. 22.4 Aðalfundur Heilbrigðiseftilits Austurlands 24.október 20181810016
    5. 22.5 Breytingar á þjóðvegum með tilkomu Norðfjarðarganga og hjáleiðin á Reyðarfirði1712061
    6. 22.6 Viðbygging við leikskólann Lyngholt1611029
    7. 22.7 Framkvæmdir við leikskólann Lyngholt1810199
    8. 22.8 Gjaldskrá hitaveitu Fjarðabyggðar 20191810072
    9. 22.9 Starfs- og fjárhagsáætlun ESU-nefndar í A hluta 20191809019
    10. 22.10 Svæðisskipulag fyrir Austurland1602151
    11. 22.11 740 Deiliskipulag Urðarbotna1712069
    12. 22.12 735 Ystidalur 10-12 -umsókn um lóð1811070
    13. 22.13 Fyrirspurn um lóðir á Reyðarfirði og Eskifirði1802071
    14. 22.14 755 Grenimelur 11 - byggingarleyfi1810143
    15. 22.15 740 Skólavegur 12 - byggingarleyfi, hringstigi1810181
    16. 22.16 750 Vattarnes - byggingarleyfi, breytt notkun1811033
    17. 22.17 755 Heyklif, landamerki1809150
    18. 22.18 Beiðni um framlengingu á stöðuleyfi starfsmannabúða að Haga 2018-20191811025
    19. 22.19 750 Skólavegur 12 Byggingarleyfi sólpallur og skjólveggur1606082
    20. 22.20 Búfjárhald og lausaganga stórgripa1811014
    21. 22.21 Landbúnaðarnefnd - 201810030F
  23. 23. Hafnarstjórn - 206

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 206 frá 12.nóvember 2018, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 23.1 Viðbragðsáætlun Fjarðabyggðahafna vegna mengunar 20181811006
    2. 23.2 Fundargerðir Hafnasambands Íslands 20181801005
    3. 23.3 Aðalfundarboð 2018 - Ársreikningur 20171810094
    4. 23.4 730 Umsókn um lækkun hafnargjalda1811080
    5. 23.5 760 Framlag frá hafnabótasjóði1810091
    6. 23.6 740 Afnotasamingur fyrir Egilsbraut 21808028
    7. 23.7 Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 20191808161
    8. 23.8 Lengingu á stálþili við Egersund á Eskifirði1504173
    9. 23.9 750 Beiðni um styrkveitingu vegna tækjakaupa1811027
    10. 23.10 Aðstaða skipafélaga í Fjarðabyggð1801145
  24. 24. Menningar- og nýsköpunarnefnd - 7

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð menningar- og nýsköpunarnefndar, nr. 7 frá 12.nóvember 2018, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 24.1 Menningarstefna Fjarðabyggðar1805211
    2. 24.2 Græn atvinnustarfsemi1810030
    3. 24.3 Minningarskjöldur um Richard Long (1783-1837)1810185
    4. 24.4 Tónlistarmiðstöð Austurlands - 20181810104
    5. 24.5 Ferðasumarið 2018 - Skýrsla1811045
    6. 24.6 Safnanefnd - 41810029F
  25. 25. Safnanefnd - 4

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð safnanefndar, nr. 4 frá 30.október 2018, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 25.1 Vettvangsheimsókn í Íslenska stríðsárasafnið1810007
  26. 26. Landbúnaðarnefnd - 20

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð landbúnaðarnefndar, nr. 20 frá 5.nóvember 2018, lögð fram til umfjöllunar.