Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirBæjarráð

Bæjarráð, fundur 590

27. nóvember 2018, kl. 13:00 til 14:42, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Gunnlaugur Sverrisson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (5)

Fundinn sátu

  • Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
  • Jón Björn Hákonarson, varaformaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
  • Karl Óttar Pétursson, bæjarstjóri

Dagskrá

  1. 1. Fjárhagsáætlun Fjarðabyggðar 2019 - trúnaðarmál

    Mál 1808019 Allur ferill málsins

    Fjárhagsáætlun 2019, þriggja ára áætlun 2020 - 2002 og starfsáætlun 2019, lagðar fram fyrir síðari umræðu í bæjarstjórn. Bæjarráð vísar fjárhagsáætlun 2019, þriggja ára áætlun 2020 - 2022 og starfsáætlun 2019 til síðari umræðu í bæjarstjórn.

  2. 2. Útsvar 2019

    Mál 1810201 Allur ferill málsins

    Lagt er til að álagningarhlutfall útsvars verði hámarksútsvar, þ.e. 14,52% af útsvarsstofni í Fjarðabyggð. Tillaga þessi er í samræmi við 24.gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995. Bæjarráð vísar ákvörðun um álagningarhlutfall útsvars til staðfestingar bæjarstjórnar.

  3. 3. Gjaldskrá fasteignagjalda 2019

    Mál 1810063 Allur ferill málsins

    Framlögð tillaga að álagningu fasteignagjalda á árinu 2019 ásamt tillögu að reglum um afslátt af fasteignaskatti til elli- og örorkulífeyrisþega á árinu 2019. Jafnframt lagt fram minnisblað fjármálastjóra um tillögu. Vísað til samþykktar í bæjarstjórn.

  4. 4. Gjaldskrá líkamsræktarstöðva 2019

    Mál 1810077 Allur ferill málsins

    Íþrótta- og tómstundanefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, gjaldskrá fyrir líkamsræktarstöðvar vegna 2019 og vísar afgreiðslu til bæjarráðs. Bæjarráð samþykkir gjaldskrá fyrir líkamsræktarstöðvar á Eskifirði, Norðfirði og Reyðarfirði og jafnframt gjaldskrá fyrir líkamsrækt í Breiðdal.

  5. 5. Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2019

    Mál 1808161 Allur ferill málsins

    Á fundi hafnarstjórnar Fjarðabyggðar 12. nóvember 2018 var gjaldskrá Fjarðabyggðarhafna fyrir árið 2019 samþykkt og vísað til staðfestingar í bæjarráði. Bæjarráð samþykkir gjaldskrá fyrir Fjarðabyggðarhafnir fyrir árið 2019.

  6. 6. Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2019

    Mál 1810084 Allur ferill málsins

    Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd hefur samþykkt, fyrir sitt leyti, gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs árið 2019 og vísar afgreiðslu til bæjarráðs. Heilt yfir hækkar gjaldskráin um 2,9% en 10% hækkun er á förgunargjöldum á blönduðum úrgangi og grófum úrgangi. Klippikort hækka um 15% en hver fjölskylda fær áfram eitt gjaldfrjálst klippikort á ári. Bæjarráð samþykkir gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs.

  7. 7. Útboð vátrygginga 2018

    Mál 1811026 Allur ferill málsins

    Framlögð til kynningar útboðslýsing vegna útboðs vátrygginga Fjarðabyggðar. Bæjarráð samþykkir útboðslýsingu, felur fjármálastjóra að auglýsa eftir tilboðum í vátryggingar Fjarðabyggðar og vinna málið áfram.

  8. 8. Kirkjumelur Norðfjarðarsveit - eignarhald

    Mál 1701071 Allur ferill málsins

    Lagt fram sem trúnaðarmál drög að samkomulagi Fjarðabyggðar og Ríkissjóðs, um fyrirhugaða sölu á húsnæði fyrrum grunnskóla við Kirkjumel í Norðfjarðarsveit. Bæjarráð vísar málinu til fjármálastjóra og sviðsstjóra framkvæmdasviðs til úrvinnslu.

  9. 9. Bleiksárhlíð 56 - sala (gamla Hulduhlíð)

    Mál 1702215 Allur ferill málsins

    Rætt um drög að samkomulagi vegna sölu á eignarhlut ríkisins í Bleiksárhlíð 56 Eskifirði - Gömlu Hulduhlíð. Bæjarstjóra falið að vinna málið áfram.

  10. 10. Aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga bs. 19. nóvember

    Mál 1811037 Allur ferill málsins

    Fundargerð aðalfundur Héraðsskjalasafns Austfirðinga frá 19.nóvember 2018, lögð fram til kynningar.

  11. 11. Efling Egilsstaðaflugvallar og framtíð flugvallarverkefnisins

    Mál 1811137 Allur ferill málsins

    Bréf Austurbrúar frá 14.nóvember er varðar framtíð flugvallarverkefnisins og fjármögnun þess. Lagt fram til kynningar og tekið fyrir á næsta fundi þegar framkvæmdastjóri Austurbrúar kemur inn á fund bæjarráðs.

  12. 12. Aðalskipulag Seyðisfjarðarkaupstaðar tillaga um breytingu á skilmálum og landnotkun í Lönguhlíð ásamt breytingu á deiliskipulagi fyrir Lönguhlíð

    Mál 1811146 Allur ferill málsins

    Lagðar fram tillögur á vinnslustigi að breytingum á aðalskipulagi Seyðisfjarðarkaupstaðar og deiliskipulagi í Lönguhlíð til umsagnar. Óskað er eftir að umsagnir berist fyrir 10. desember nk. Vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar til afgreiðslu.

  13. 13. Ljósleiðaravæðing 2019 - umsóknir

    Mál 1811036 Allur ferill málsins

    Framlagt minnisblað um umsóknir til Fjarskiptasjóðs vegna verkefnsins "Ísland ljóstengt". Umsóknarfrestur í a-hluta umsóknarferilsins var 23. nóvember sl.

  14. 14. Eftirlitsmyndavélar í Fjarðabyggð

    Mál 1808136 Allur ferill málsins

    Óskar Þór Guðmundsson lögreglumaður sat þennan lið fundarins og ræddi eftirlitsmyndavélar í sveitarfélaginu. Óskar mun taka saman minnisblað fyrir bæjarráð.

  15. 15. Framkvæmdaáætlun vegna hreinsunar í hverfum

    Mál 1811147 Allur ferill málsins

    Lögð fram framkvæmdaáætlun umhverfisstjóra vegna hreinsunar í hverfum bæjarins, með sérstaka áherslu á bílhræ.

  16. 16. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 220

    Fundargerðin í heild

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 220 frá 19.nóvember 2018, lögð fram til umfjöllunar.

    1. 16.1 Upplýsingagjöf sveitarstjórna við útgáfu og endurskoðun á svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs1711068
    2. 16.2 Breytingar á þjóðvegum með tilkomu Norðfjarðarganga og hjáleiðin á Reyðarfirði1712061
    3. 16.3 Þjóðgarðafrumvarp1811086
    4. 16.4 Ljósleiðaravæðing 2019 - umsóknir1811036
    5. 16.5 Ferðasumarið 2018 - Skýrsla1811045
    6. 16.6 Fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaupstað,framleiðsluaukning-beiðni um umsögn1811088
    7. 16.7 740 Nesgata 3 - Breyting á skráningu atvinnuhúsnæðis í íbúðarhúsnæði1811113
    8. 16.8 740 - Oddsskarð - Byggingarleyfi, þak á verkstæðisgáma1811126
    9. 16.9 735 Strandgata 65 - Endurgerð Gamla Barnaskólans1811116