Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 220

19. nóvember 2018, kl. 16:00 til 17:30, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, varaformaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Ívar Dan Arnarson, aðalmaður
  • Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður
  • Marinó Stefánsson, embættismaður
  • Ragna Dagbjört Davíðsdóttir, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 590 liður 16

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 220 frá 19.nóvember 2018, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Upplýsingagjöf sveitarstjórna við útgáfu og endurskoðun á svæðisáætlun um meðhöndlun úrgangs

    Mál 1711068 Allur ferill málsins

    Eigna- skipulags og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leiti að hafist verði handa við gerð nýrrar svæðisáætlunar og felur verkefnastjóra umhverfismála að vinna þá vinnu fyrir hönd Fjarðabyggðar.

  2. 2. Breytingar á þjóðvegum með tilkomu Norðfjarðarganga og hjáleiðin á Reyðarfirði

    Mál 1712061 Allur ferill málsins

    Sveinn Sveinsson og Guðjón Magnússon frá Vegagerðinni á Reyðarfirði komu á fund eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar og fóru yfir nokkur samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Fjarðabyggðar.

  3. 3. Þjóðgarðafrumvarp

    Mál 1811086 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar ályktun stjórnar Landssamtaka landeiganda á Íslandi vegna hugmynda um breytingar á náttúruverndarlögunum.

  4. 4. Ljósleiðaravæðing 2019 - umsóknir

    Mál 1811036 Allur ferill málsins

    Fjarskiptasjóður hefur auglýst eftir umsóknum um styrki í átaksverkefninu Ísland ljóstengt fyrir árið 2019. Umsóknarfrestur er til 23.nóvember nk. Vísað til framkvæmdasviðs og bæjarstjóra til vinnslu og kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd.

  5. 5. Ferðasumarið 2018 - Skýrsla

    Mál 1811045 Allur ferill málsins

    Skýrsla um ferðasumarið 2018 lögð fram til kynningar.

  6. 6. Fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaupstað,framleiðsluaukning-beiðni um umsögn

    Mál 1811088 Allur ferill málsins

    Lögð fram beiðni Skipulagsstofnunar, dagsett 7. nóvember 2018, um umsögn um hvort og á hvaða forsendum fyrirhuguð framleiðsluaukning og stækkun fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnsunnar hf. í Neskaupstað skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 2. viðauka laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Lögð fram fyrirspurn Síldarvinnslunnar hf um matskyldu framkvæmdar, dagsett í nóvember 2018, unnin af Mannvit hf.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að fyrirhuguð framleiðsluaukning og stækkun fiskimjölsverksmiðju sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

  7. 7. 740 Nesgata 3 - Breyting á skráningu atvinnuhúsnæðis í íbúðarhúsnæði

    Mál 1811113 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Guðnýjar Þorfinnsdóttur, dagsett 15. nóvember 2018, þar sem sótt er um leyfi til að breyta skráðri notkun húss hennar að Nesgötu 3 á Norðfirði úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Teikningar eru unnar af Steindóri H. Stefánssyni arkitekt.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um ákvörðun nefndarinnar.

  8. 8. 740 - Oddsskarð - Byggingarleyfi, þak á verkstæðisgáma

    Mál 1811126 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 16. nóvember 2018, þar sem sótt er um leyfi til að byggja uppstólað einhalla þak á verkstæði Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði. Teikningar eru unnar af Mannvit hf.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um ákvörðun nefndarinnar.

  9. 9. 735 Strandgata 65 - Endurgerð Gamla Barnaskólans

    Mál 1811116 Allur ferill málsins

    Lagðar fram tillöguteikningar Hollvinasamtaka Gamla Barnaskólans á Eskifirði að endurgerð hússins, dagsettar í október 2018. Tillögurnar eru unnar af Argos ehf, arkitektastofa Grétars og Stefáns.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fagnar framtaki Hollvinasamtakanna og lýsir yfir ánægju sinni með tillögurnar.