Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

Fiskimjölsverksmiðja Síldarvinnslunnar í Neskaupstað,framleiðsluaukning-beiðni um umsögn

Mál 1811088 Fyrst á dagskrá 19. nóvember 2018, síðast 27. nóvember 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Neskaupstaður og Norðfjörður

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2018

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 220 liður 6

    Lögð fram beiðni Skipulagsstofnunar, dagsett 7. nóvember 2018, um umsögn um hvort og á hvaða forsendum fyrirhuguð framleiðsluaukning og stækkun fiskimjölsverksmiðju Síldarvinnsunnar hf. í Neskaupstað skuli háð mati á umhverfisáhrifum að teknu tilliti til 2. viðauka laga nr. 106/2000 um mat á umhverfisáhrifum. Lögð fram fyrirspurn Síldarvinnslunnar hf um matskyldu framkvæmdar, dagsett í nóvember 2018, unnin af Mannvit hf.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd telur að fyrirhuguð framleiðsluaukning og stækkun fiskimjölsverksmiðju sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum.

  2. Bæjarráð, fundur 590 liður 16.6

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 220“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is