Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2018

740 Nesgata 3 - Breyting á skráningu atvinnuhúsnæðis í íbúðarhúsnæði

Mál 1811113 Fyrst á dagskrá 19. nóvember 2018, síðast 27. nóvember 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Byggingar og framkvæmdir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2018

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 220 liður 7

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Guðnýjar Þorfinnsdóttur, dagsett 15. nóvember 2018, þar sem sótt er um leyfi til að breyta skráðri notkun húss hennar að Nesgötu 3 á Norðfirði úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði. Teikningar eru unnar af Steindóri H. Stefánssyni arkitekt.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um ákvörðun nefndarinnar.

  2. Bæjarráð, fundur 590 liður 16.7

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 220“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is