Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirHafnarstjórn

Hafnarstjórn, fundur 206

12. nóvember 2018, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Hákon Ásgrímsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Jón Björn Hákonarson, formaður
  • Eydís Ásbjörnsdóttir, varaformaður
  • Kamma Dögg Gísladóttir, aðalmaður
  • Sævar Guðjónsson, aðalmaður
  • Rúnar Már Gunnarsson, aðalmaður

Starfsmenn

  • Hákon Ásgrímsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 589 liður 23

    Fundargerð hafnarstjórnar, nr. 206 frá 12.nóvember 2018, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Viðbragðsáætlun Fjarðabyggðahafna vegna mengunar 2018

    Mál 1811006 Allur ferill málsins

    Viðbragðsáætlun vegna mengunar fyrir Fjarðabyggðahafnir lögð fram til kynningar í hafnarstjórn. Hafnarstjórn samþykkir áætlunina og vísar henni til bæjarráðs til staðfestingar. Jafnframt óskar hafnarstjórn eftir því að sviðsstjóri framkvæmdasviðs komi inn á næsta hafnarstjórnarfund til að ræða öryggismál við framkvæmdir.

  2. 2. Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2018

    Mál 1801005 Allur ferill málsins

    Fundargerð Hafnasambands Íslands númer 406 og 407 lögð fram til kynningar.

  3. 3. Aðalfundarboð 2018 - Ársreikningur 2017

    Mál 1810094 Allur ferill málsins

    Aðalfundur Fiskmarkaðs Austurlands ehf var haldinn laugardaginn 2. nóvember. Framkvæmdastjóri kynnti umræður á fundinum.

  4. 4. 730 Umsókn um lækkun hafnargjalda

    Mál 1811080 Allur ferill málsins

    Íbúi í Fjarðabyggð hefur sótt um lækkun á hafnargjöldum á þeirri forsendu að hann sé á ellilífeyrisaldri. Hafnarstjórn telur að ekki séu forsendur til að verða við beiðni um lækkun á hafnargjöldum og felur framkvæmdastjóra að svara erindinu.

  5. 5. 760 Framlag frá hafnabótasjóði

    Mál 1810091 Allur ferill málsins

    Á sínum tíma sótti Breiðdalsvíkurhöfn um styrk til Hafnabótasjóðs vegna framkvæmda við flotrbryggjur. Framkvæmdastjóra falið að halda áfram samskiptum við Vegagerðina vegna málsins.

  6. 6. 740 Afnotasamingur fyrir Egilsbraut 2

    Mál 1808028 Allur ferill málsins

    Lagt er til að afnotasamningur verði gerður við Safnastofnun Fjarðabyggðar um afnot af Egilsbraut 2, Neskaupstað. Hafnarstjórn samþykkir að gera afnotasamning við Safnastofnun Fjarðabyggðar í stað Safnaráðs Neskaupstaðar.

  7. 7. Gjaldskrá Hafnarsjóðs Fjarðabyggðar 2019

    Mál 1808161 Allur ferill málsins

    Áframhald umræðu um gjaldskrá Hafnasjóðs Fjarðabyggðar fyrir 2019. Drög að gjaldskrá samþykkt og vísað til bæjarráðs.

  8. 8. Lengingu á stálþili við Egersund á Eskifirði

    Mál 1504173 Allur ferill málsins

    Framkvæmdastjóri hafna kynnti stöðu framkvæmda við nýjan kant við Egersund. Á framkvæmdaáætlun ársins 2018 var gert ráð fyrir að steypa kantbita og þekju en þar sem ennþá mælist sig á landi og stálþili hefur ekki enn verið farið í þær framkvæmdir. Mæling verður tekin á sigi í vikunni og framkvæmdastjóra falið að ræða við Egersund um niðurstöður mælinga og stefnt að útboði um áramót.

  9. 9. 750 Beiðni um styrkveitingu vegna tækjakaupa

    Mál 1811027 Allur ferill málsins

    Beiðni um styrkveitingu vegna tækjakaupa hefur borist frá Björgunarsveitinni Geisla á Fáskrúðsfirði. Hafnarstjórn samþykkir að fela framkvæmdastjóra að ræða við Björgunarsveitina um þjónustusamning vegna aðstoðar við hafnir Fjarðabyggðar.

  10. 10. Aðstaða skipafélaga í Fjarðabyggð

    Mál 1801145 Allur ferill málsins

    Rætt um aðstöðu fyrir starfsemi skipafélaga í Fjarðabyggð.