Viðbragðsáætlun Fjarðabyggðahafna vegna mengunar 2018
Mál 1811006 Fyrst á dagskrá 12. nóvember 2018, síðast 19. nóvember 2018. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Hafnarstjórn.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2018
Hafnarstjórn, fundur 206 liður 1
Viðbragðsáætlun vegna mengunar fyrir Fjarðabyggðahafnir lögð fram til kynningar í hafnarstjórn. Hafnarstjórn samþykkir áætlunina og vísar henni til bæjarráðs til staðfestingar. Jafnframt óskar hafnarstjórn eftir því að sviðsstjóri framkvæmdasviðs komi inn á næsta hafnarstjórnarfund til að ræða öryggismál við framkvæmdir.
-
Bæjarráð, fundur 589 liður 15
Á fundi hafnarstjórnar Fjarðabyggðar 12. nóvember 2018 var Viðbragðsáætlun Fjarðabyggðahafna vegna mengunaróhappa samþykkt. Áætluninni var vísað til staðfestingar í bæjarráði. Bæjarráð samþykkir viðbragðsáætlun vegna mengunaróhappa. Vísað til samþykktar í bæjarstjórn.
-
Bæjarráð, fundur 589 liður 23.1
Fundargerðin „Hafnarstjórn - 206“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.