Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 64

5. desember 2018, kl. 16:30 til 19:30, í Molanum fundarherbergi 1. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
  • Aðalbjörg Guðbrandsdóttir, aðalmaður
  • Alma Sigurbjörnsdóttir, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Birgir Jónsson, embættismaður
  • Þóroddur Helgason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 592 liður 21

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 64 frá 5.desember 2018, lögð fram til umfjöllunar.

  • Bæjarstjórn, fundur 259 liður 5

    Enginn tók til máls.

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 64 frá 5.desember 2018, samþykkt með 9 atkvæðum.

Dagskrá

  1. 1. Starfsáætlanir og skólanámskrár leik- og grunnskóla

    Mál 1810149 Allur ferill málsins

    Fyrir liggja starfsáætlanir og skólanámskrár Eyrarvalla, Nesskóla, Grunnskólans á Eskifirði og Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar fyrir skólaárið 2018-2019. Skólastjórar Nesskóla, Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar og Grunnskólans á Eskifirði kynntu áætlanirnar og svöruðu spurningum nefndarfólks. Skólastjórnendur Eyrarvalla mun fara yfir áætlanir skólans eftir áramót. Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi starfsáætlanir og skólanámskrár og þakkar skólastjórum fyrir greinargóð svör.

  2. 2. Snjallsímanotkun í grunnskólum Fjarðabyggðar

    Mál 1806053 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur tillaga starfshóps þar sem lagt er mat á snjalltækjaþörf grunnskólanna í Fjarðabyggð og sett fram tillaga að reglum um snjalltæki í grunnskólum. Einnig liggur fyrir ályktun frá kennurum á unglingastigi Nesskóla og yfirlýsing frá ungmennaráði Fjarðabyggðar. Fræðslunefnd hefur farið yfir fyrirliggjandi álit og tillögur. Í samræmi við tillögu starfshóps sem skipuð var skólastjórum grunnskólanna og fræðslustjóra, er lagt til að kaupa þar til greindan fjölda snjalltækja og taka upp þær reglur sem þar eru tilgreindar í kjölfar kynningar í skólunum og hjá ungmennaráði. Þessu skal lokið fyrir 31. janúar 2019. Lagt er til að reglurnar taki gildi 1. febrúar 2019 og nefndin leggur til að reglurnar verði skoðaðar að nýju í janúar 2020. Fræðslunefnd ítrekar að markmiðið með þessum reglum er að stuðla að enn betra námsumhverfi og bættri líðan nemenda.

  3. 3. Ytra mat á leikskólum 2018

    Mál 1711014 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur ytra mat Menntamálastofnunar á leikskólanum Dalborg á Eskifirði. Í lokaorðum segir m.a. Ytra mat með vettvangsathugunum, viðtölum og greiningu gagna í Leikskólanum Dalborg leiðir í ljós

    að þar fer fram gott leikskólastarf. Almenn ánægja er með stjórnun í leikskólanum, starfsandi og skólabragur er góður og starfsfólk segir þekkingu sína og hæfni vera vel nýtta. Unnið er markvisst að eflingu samskipta í leikskólanum og börnin eru hvött til sjálfshjálpar í daglegum athöfnum. Þeim líður vel í leikskólanum og eru glöð og áhugasöm. Í ytra matinu kemur einnig fram að vinna þurfi markvisst að innra mati skólans og auka þurfi lýðræðisþátttöku barna í ákvarðanatöku og gera skapandi starfi og vísindum hærra undir höfði. Það er mikill fengur að fá ytra mat á skóla og lærdómsríkt ferli sem farið er í gegnum. Það er mikill styrkur fyrir skólann að fá þá jákvæðu umsögn sem fram kemur sem og þarfar ábendingar um það sem betur má gera. Leikskólinn vinnur nú að gerð umbótaáætlunar út frá niðurstöðunum.

  4. 4. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð

    Mál 1808078 Allur ferill málsins

    Í starfsáætlun fræðslunefndar og íþrótta- og tómstundanefndar er gert ráð fyrir endurskoðun á fræðslu- og frístundastefnu Fjarðabyggðar sem samþykkt var árð 2009. Fyrir liggur minnisblað fræðslustjóra þar sem sett er fram tillaga að samsetningu á fjölskipuðum hópi fólks sem ynni að endurskoðun núverandi stefnu ásamt því að útbúa 3 ára aðgerðaráætlun. Einnig er sett fram tillaga að erindisbréfi þar sem verkefnið er nánar skilgreint. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili af sér í maí 2019. Fræðslunefnd samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti.

  5. 5. Læsisstefna Fjarðabyggðar

    Mál 1803047 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur tillaga frá starfshóp um gerð læsisstefnu um hvernig skuli kynna og fylgja eftir læsisstefnunni. Starfshópurinn hafði áður lagt til að læsisstefnan Læsi er lykillinn yrði tekin upp sem læsisstefna Fjarðabyggðar og var það samþykkt í fræðslunefnd og góðfúslegt leyfi fengið frá Akureyrarbæ og Miðstöð skólaþróunar Háskólans á Akureyri, höfundum stefnunnar. Fræðslunefnd samþykkir að tekin verði upp læsisstefnan Læsi er lykillinn og samþykkir tillögu starfshópsins um kynningu og eftirfylgni.

  6. 6. Niðurstöður úr Skólavoginni

    Mál 1311034 Allur ferill málsins

    Farið var yfir gögn sem nú eru aðgengileg í Skólavoginni, matstæki fyrir skóla. Gögnin eru rekstrarupplýsingar leik- og grunnskóla 2017 og nemendakönnun 6.-10.bekkjar grunnskóla 2018. Niðurstöður nemendakönnunar sem framkvæmd var nú í haust verða kynntar starfsfólki og skólaráðum og verða aðgengilegar á heimasíðum grunnskólanna. Lagt fram til kynningar.

  7. 7. Aðalfundur Skólaskrifstofu 2018

    Mál 1811134 Allur ferill málsins

    Lagðar voru fram til kynningar fundargerðir stjórnar- og aðalfundar Skólaskrifstofu Austurlands ásamt ársreikningi 2017 og fjárhagsáætlun fyrir árið 2019. Einnig var lagður fram til kynningar samningur um sameiginlegt þjónustusvæði 2018.

  8. 8. Sumarleyfi leikskólanna í Fjarðabyggð 2019

    Mál 1811144 Allur ferill málsins

    Fyrir liggur tillaga fræðslustjóra að sumarleyfi leikskólanna í Fjarðabyggð sumarið 2019. Tillagan byggir á starfsáætlun í fræðslumálum fyrir 2019, þar sem gert er ráð fyrir sumarlokunin í 4 vikur, 20 virka daga. Sumarlokun skólanna spannar tvo mánuði. Tillaga að sumarlokun 2018 er sem hér segir:

    Dalborg Eskifirði

    19.06 - 16.07 báðir dagar meðtaldir

    Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóli 01.07 - 26.07 báðir dagar meðtaldir

    Kæribær Fáskrúðsfirði

    01.07 - 26.07 báðir dagar meðtaldir

    Lyngholt Reyðarfirði

    10.07 - 07.08 báðir dagar meðtaldir

    Eyrarvellir Norðfirði

    19.07 - 16.08 báðir dagar meðtaldir

    Þá geta foreldrar boðið börnum sínum upp á fjögurra, sex eða átta vikna samfellt sumarleyfi. Leikskólagjöld falla niður í einn mánuð, einn og hálfan mánuð eða tvo mánuði eftir lengd sumarleyfis.

    Fræðslunefnd samþykkir fyrirliggjandi tillögu.