Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirFræðslunefnd

Fræðslunefnd, fundur 65

23. janúar 2019, kl. 16:30 til 00:00, í Molanum fundarherbergi 3. Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (8)

Fundinn sátu

  • Sigurður Ólafsson, formaður
  • Birta Sæmundsdóttir, aðalmaður
  • Aðalbjörg Guðbrandsdóttir, aðalmaður
  • Sævar Örn Arngrímsson, aðalmaður
  • Jóhanna Sigfúsdóttir, aðalmaður

Starfsmenn

  • Bryndís Guðmundsdóttir, áheyrnarfulltrúi
  • Birgir Jónsson, embættismaður
  • Þóroddur Helgason, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 597 liður 11

    Fundargerð fræðslunefndar, nr. 65 frá 23.janúar 2019, lögð fram til umfjöllunar.

Dagskrá

  1. 1. Fyrirspurn um styrk vegna akstur til og frá leikskólanum Ástúni Breiðdalsvík

    Mál 1901029 Allur ferill málsins

    Tekin var til umræðu fyrirspurn um styrk vegna akstur leikskólabarns til og frá leikskóla. Ekki er gert ráð fyrir skólaakstri leikskólabarna í áætlunum sveitarfélagsins og ekki er gert ráð fyrir því að bjóða upp á slíka þjónustu að svo stöddu.

  2. 2. Fundaáætlun fræðslunefndar vor 2019

    Mál 1901009 Allur ferill málsins

    Til umræðu og afgreiðslu er tillaga um fundaáætlun fræðslunefndar fyrir vorið 2019. Fræðslunefnd samþykkir tillöguna.

  3. 3. Snjallsímanotkun í grunnskólum Fjarðabyggðar

    Mál 1806053 Allur ferill málsins

    Til umræðu var kynning á nýjum reglum um snjalltæki sem taka gildi í grunnskólum Fjarðabyggðar 1. febrúar næstkomandi. Formaður fræðslunefndar, sálfræðingur Skólaskrifstofu Austurlands og fræðslustjóri hafa kynnt reglurnar fyrir nemendum og starfsfólki grunnskólanna í þessari viku og þeirri síðustu. Bréf verður sent til allra foreldra fyrir mánaðarmót. Einnig var rætt um aukinn tækjabúnað skólanna, ákvörðun um að bæta netsamband inn í skólana og þráðlausa netið innan skólanna. Fræðslunefnd fagnar bættum tækjabúnaði og tengingum inn í skólana og óskar nemendum og starfsfólki skóla velfarnaðar með notkun búnaðarins og við framkvæmd nýrra reglna um snjalltæki.

  4. 4. Læsisstefna Fjarðabyggðar

    Mál 1803047 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri sagði frá kynningum á læsisstefnu Fjarðabyggðar, Læsi er lykillinn, í skólum Fjarðabyggðar og vinnu við endurskoðun á læsisstefnu hvers skóla.

  5. 5. Stefnumörkun í fræðslu- og frístundamálum í Fjarðabyggð

    Mál 1808078 Allur ferill málsins

    Fræðslustjóri sagði frá undirbúningsvinnu við endurskoðun á fræðslu- og frístundastefnu Fjarðabyggðar. Fyrsti fundur fjölskipaðs starfshóps er mánudagurinn 28. janúar.

  6. 6. Málefni fatlaðra barna í Fjarðabyggð

    Mál 1901142 Allur ferill málsins

    Fært í trúnaðarbók