Beint í efni
Hnotskurninn

Mál2019

Hreinsun strandlengju Fjarðabyggðar - umsókn um styrk til Alcoa foundation

Mál 1805245 Fyrst á dagskrá 22. október 2018, síðast 8. júlí 2019. 3 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.

Í heiti málsins: Styrkir

Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.

Ferill málsins

  • Málið var á dagskrá fundar
  • Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
Leið málsins í tímaröð, frá vinstri til hægri. Hver lína er ein nefnd eða ráð. Feita línan tengir fundina þar sem málið sjálft var á dagskrá. Guli reiturinn er síðasta færslan. Ýttu á punkt til að sjá færsluna.
  1. 2018

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 217 liður 2

    Lagt fram til kynningar bréf Alcoa Foundation, dagsett 17. október 2018, vegna veitts styrks í verkefnið "Hreinsun strandlengjunnar". Lagt fram minnisblað umhverfisstjóra um verkefnið, dagsett 16. október 2018.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fagnar úthlutninni og felur umhverfisstjóra að hrinda verkefninu í framkvæmd í samráði við sviðsstjóra framkvæmdasviðs og verkefnefnastjóra umhverfissmála.

  2. 2019

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 237 liður 1

    Lögð fram til kynningar samantekt umhverfisstjóra vegna verkefnisins „hreinsun strandlengjunnar“, dagsett 26. júní 2019. Styrktarsjóður Fjarðaráls, Alcoa Foundation, styrkti Fjarðabyggð vegna verkefnisins sem gekk út á hreinsunarvinnu á strandsvæðum í fjörðum, víkum og eyjum Fjarðabyggðar. Styrkurinn rann allur til hinna ýmsu félagsamtaka vegna kostnaðar við verkefnið.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd þakkar Alcoa Foundation ásamt, Göngufélagi Suðurfjarða, Björgunarsveitinni Eini,- Geisla,- Ársól,- Brimrún,- og Gerpi ásamt Veraldarvinum fyrir framtakið.

  3. Bæjarráð, fundur 623 liður 11.1

    Fundargerðin „Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 237“ var lögð fram á fundinum. Málið er liður í henni.

    Opinber fundargerð á fjardabyggd.is