172.mál - til umsagnar tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2019 - 2023
Mál 1810098 Fyrst á dagskrá 22. október 2018, síðast 29. október 2018. 2 færslur í fundargerðum hjá: Bæjarráð, Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2018
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 217 liður 18
Lögð fram beiðni frá nefndarsviði Alþingis, dagsett 12. október 2018, um umsögn um tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2019-2023, 172. mál.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
-
Bæjarráð, fundur 586 liður 37
Lögð fram beiðni frá nefndarsviði Alþingis, dagsett 12. október 2018, um umsögn um tillögu til þingsályktunar um fimm ára samgönguáætlun fyrir árin 2019-2023, 172. mál.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd vísar málinu til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir því harðlega að ekki sé gert ráð fyrir neinum endurbótum á Suðurfjarðarvegi í drögum fimm ára samgönguáætlunar. Fyrir liggur að mikil þörf er á endurbótum á Þjóðvegi 1 um firði með umferðaröryggi í huga enda gríðarmikil umferð fólks og vöruflutninga um hann. Þá leggur bæjarráð áherslu á að ljósabúnaður á Norðfjarðarflugvelli verði settur inn á fimm ára samgönguáætlun enda er sá flugvöllur mikilvægur í sjúkraflugi.