740 - Umsókn um uppsetningu á auglýsingaskilti
Mál 1808060 Á dagskrá 20. ágúst 2018. 1 færsla í fundargerðum hjá: Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2018
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 211 liður 19
Lagt fram bréf Guðröðar Hákonarsonar fh. Hildibrand slf, dagsett 16. ágúst 2018, þar sem óskað er eftir leyfi til að setja upp auglýsingarskilti fyrir Beituskúrinn á snúningsplani ofan við vitann í Neskaupstað.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki samþykkt uppsetningu skilta utan lóðarmarka. Einnig er bent á að umrætt snúningsplan er mögulega utan þéttbýlismarka og uppsening skiltis því óheimil samkvæmt 72. gr. laga um náttúruvend nr. 60/2013. Nefndin felur skipulags- og byggingarfulltrúa að gera drög að reglum um skilti í Fjarðabyggð og leggja fyrir nefndina.