Verkefnið "SIBS lif og heilsa" óskar eftir samstarfi við Sveitarfélög á Austurlandi
Mál 1808090 Á dagskrá 28. ágúst 2018. 1 færsla í fundargerðum hjá: Bæjarráð.
Um þetta mál hefur ekki verið skrifað yfirlit. Ferillinn hér fyrir neðan er tekinn beint úr fundargerðum, án endursagnar.
Ferill málsins
- Málið var á dagskrá fundar
- Fundargerð með málinu lögð fram á öðrum fundi
-
2018
Bæjarráð, fundur 576 liður 9
SÍBS Líf og heilsa er forvarnaverkefni um lífsstíl og heilbrigði þar sem SÍBS og Hjartaheill heimsækja bæjarfélög og bjóða ókeypis heilsufarsmælingu og þátttöku í könnun um lífsstíl og heilsufar. Mælingaferð um Austurland er nýlokið en alls þáðu 1.044 Austfirðingar heilsufarsmælingu í ágúst, þar af 498 íbúar í Fjarðabyggð en boðið var upp á mælingar í sex þéttbýliskjörnum í Fjarðabyggð frá Breiðdalsvík til Neskaupstaðar. Óskað er eftir að átakið verði styrkt um 50.000 til 100.000 kr.
Bæjarráð samþykkir að styrkja átakið um 50.000 kr. Tekið af liðinum óráðstafað 21690.