Bæjarráð, fundur 569
2. júlí 2018, kl. 08:30 til 10:20, í Molanum fundarherbergi 1 og 2. Fundargerð ritaði Gunnar Jónsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)
Fundinn sátu
- Jens Garðar Helgason, aðalmaður
- Jón Björn Hákonarson, varaformaður
- Eydís Ásbjörnsdóttir, formaður
- Rúnar Már Gunnarsson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Gunnar Jónsson, embættismaður
- Gunnlaugur Sverrisson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 249 liður 2
Fundargerðir bæjarráðs nr. 568 og 569 teknar til afgreiðslu saman.
Til máls tóku Eydís Ásbjörnsdóttir, Jens Garðar Helgason, Jón Björn Hákonarson og Einar Már Sigurðarson.
Fundargerð bæjarráðs, nr. 569 frá 2. júlí 2018, staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Forsendur fyrir vinnslu fjárheimilda fyrir árið 2019-2022
Mál 1806179 Allur ferill málsins
Framlagt bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga um forsendur fyrir gerð fjárhagsáætlana árin 2019 til 2022. Vísað til fjármálastjóra í tengslum við vinnu við gerð fjárhagsáætlunargerðar fyrir árið 2019.
-
2. Reglur um kjör kjörinna fulltrúa
Mál 1806177 Allur ferill málsins
Framlögð drög að endurskoðuðum reglum um launakjör kjörinna fulltrúa Fjarðabyggðar. Byggja þær á reglum sem staðfestar voru á árinu 2014 og eru nú útfærðar með nákvæmari hætti en áður.
Bæjarráð samþykkir reglurnar fyrir sitt leyti og vísar þeim til staðfestingar bæjarstjórnar.
-
3. Ný bæjarskilti
Mál 1805081 Allur ferill málsins
Framlagt minnisblað upplýsinga- og kynningafulltrúa um lokatillögu að hönnun á bæjarskilti fyrir Reyðarfjörð. Bæjarráð er sammála um útfærslu á tillögu á bæjarskilti fyrir Reyðarfjörð, þar sem tilgreindir eru sex áfangastaðir ásamt QR kóða með frekari upplýsingum. Vísað til kynningar í eigna- skipulags- og umhverfisnefnd og menningar- og nýsköpunarnefnd.
-
4. Aukahluthafafundur SvAust
Mál 1806175 Allur ferill málsins
Boðað er til aukahluthafafundar í stjórn SvAust fimmtudaginn 5. júlí kl. 13:00 í sal Austurbrúar á Egilsstöðum. Fundarefni er skipan nýrrar stjórnar. Bæjarráð samþykkir að fela Eydísi Ásbjörnsdóttur að fara með umboð Fjarðabyggðar á fundinum.
-
5. 740 Vindheimanaust 8 - Stækkun lóðar
Mál 1806006 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu, umsókn um stækkun lóðar, sbr. póst G. Skúlasonar ehf. dagsettur 30. maí 2018, þar sem óskað er eftir að lóð fyrirtækisins að Vindheimanaust 8 á Norðfirði verði stækkuð samkvæmt gildandi deiliskipulagi. Bæjarráð samþykkir stækkun lóðar.
-
6. 740 Sæbakki 19 - Umsókn um lóð
Mál 1806066 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs lóðarumsókn Brynju Bjargar Vilhjálmsdóttur, dagsett 18. júní 2018, þar sem sótt er um lóðina við Sæbakka 19 undir einbýlishús. Bæjarráð samþykkir úthlutun lóðar. Fulltrúi Miðflokksins Rúnar Gunnarsson bókar að hann telji að allt umhald í kringum framkvæmdir við úthlutaðar lóðir, verði tekið til endurskoðunar og unnið formlegt verklag. Fyrirkomulagi á útjöfnun efnis vísað til eigna- skipulags- og umhverfisnefndar.
-
7. Endurheimtur á votlendi
Mál 1709071 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs, samningi Landgræðslunnar við Fjarðabyggð um endurheimt votlendis í landi Hólma og að hluta í landi Kollaleiru.
Bæjarráð samþykkir samninginn með fyrirvara um að hann hamli ekki uppbyggingu á atvinnu- og hafnsækinni starfsemi á jörðinni Flateyri. Samningnum visað til frekari skoðunar í hafnarstjórn og hann tekinn aftur fyrir í bæjarráði að því loknu.
-
8. Styrkir til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla
Mál 1606146 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs, þjónustusamningi við Hlöðu um að settar verði upp stöðvar í Neskaupstað, á Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Breiðdalsvík. Framlögð kostnaðaráætlun vegna kaupa og uppsetningar á hleðslustöðvum frá Hlöðu og Orkusölunni. Kostnaður Fjarðabyggðar er um 1.600.000 þegar tekið hefur verið tillit til 2.800.000 kr. styrks frá Orkusjóði. Hleðslustöð hefur verið sett upp á Stöðvarfirði.
Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins setur fyrirvara við að skattgreiðendur í Fjarðabyggð séu að greiða fyrir uppsetningu á rafhleðslustöðvum þar sem slíkt á að vera í höndum einkaaðila. Fengist hafa styrkir hjá Orkusjóði fyrir uppsetningu stöðvanna og sjálfsagt að þeir renni til aðila sem vilja byggja upp slíkar stöðvar. Það er ekki hlutverk Fjarðabyggðar að eiga og reka rafhleðslustöðvar, ekki frekar en bensínstöðvar eða matvöuverslanir.
Bæjarráð samþykkir samning fyrir sitt leyti með tveimur atkvæðum, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins er á móti. Bæjarritara falin undirritun samningsins.
-
9. Akstur til og frá athafnasvæðinu að Hrauni kl. 20:00
Mál 1607068 Allur ferill málsins
Vísað frá eigna-, skipulags-, og umhverfisnefnd til afgreiðslu bæjarráðs, tillögu um að akstursleiðin frá Hrauni kl 20:00 verði lögð niður. Leiðin er mjög kostnaðarsöm fyrir sveitarfélagið og er því lagt til við bæjarráð að leiðin verði lögð niður í samstarfi við hlutaðeigandi aðila eins fljótt og kostur er. Bæjarráð samþykkir að leggja leiðina niður en vísar málinu til frekari skoðunar í tengslum við endurskoðun á leiðarkerfi SvAust.
-
10. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2018 - 2022
Mál 1806029 Allur ferill málsins
Bæjarráð samþykkir að skipa Gunnar Ólafsson sem aðalmann í stjórn Náttúrustofu Austurlands og Ingibjörgu Þórðardóttur til vara. Jafnframt samþykkir bæjarráð að skipa Líneik Önnu Sævarsdóttur sem sameiginlegan fulltrúa Fjarðabyggðar og Fljótsdalshérðaðs í stjórn Náttúrustofu.
Bæjarráð samþykkir að skipa Einar Má Sigurðarson í stýrihóp háskólaseturs og Jón Björn Hákonarson til vara.
-
11. Leiga á snjóbíl
Mál 1805107 Allur ferill málsins
Minnisblað bæjarstjóra um fund með Hlífari Þorsteinssyni er varðar málefni snjóbíls. Í minnisblaðinu kemur fram tillaga að lausn málsins sem aðilar hafa komið sér saman um. Vísað til frekari skoðunar hjá bæjarstjóra og tekið fyrir að nýju í bæjarráði að því loknu.
-
12. Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd - 207
Framlögð til umfjöllunar fundargerð eigna-, skipulags-, og umhverfisnefndar nr. 207 frá 27. júní 2018.
- 12.1 Almenningssamgöngur Sv-Aust ehf.1602039
- 12.2 Akstur til og frá athafnasvæðinu að Hrauni kl. 20:001607068
- 12.3 Aðalskipulag Breiðdalshrepps 2018-2030, umsögn1701199
- 12.4 Endurheimtur á votlendi1709071
- 12.5 Garðsláttur1806144
- 12.6 Nýting vatns úr borholu við Sléttu1803148
- 12.7 Fyrirspurn um raforkukaup1806033
- 12.8 Borholur á Fáskrúðsfirði1806056
- 12.9 Vatnstjón á Eyrarstíg 11801118
- 12.10 Tilkynning um ábyrgðarmann Rafveita Reyðarfjarðar - staðfesting1806058
- 12.11 Ljósleiðarakerfi veitna Fáskrúðsfirði1806131
- 12.12 Styrkir til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla1606146
- 12.13 Forðafræðilíkan - Norðfjaðagöng1806136
- 12.14 Allt að 21.000 tonna framleiðsla á laxi í Berufirði og Fáskrúðsfirði - beiðni um umsögn1709077
- 12.15 425.mál - til umsagnar frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða,1804108
- 12.16 Gjöf til Fjarðabyggðar - skíðamiðstöð1806114
- 12.17 Framkvæmdir í Breiðdal1806134
- 12.18 Forkaupsréttur að Strandgötu 821806042
- 12.19 Erindisbréf landbúnaðarnefnd1806132
- 12.20 Eftirlitsskýrsla - Íþróttahúsið á Reyðarfirði - Sundlaug1806011
- 12.21 Fjölskyldu-og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði1708088
- 12.22 740 Vindheimanaust 8 - Stækkun lóðar1806006
- 12.23 Umsókn um hluta af lóðar í Neskaupstað1805256
- 12.24 740 Sæbakki 19 - Umsókn um lóð1806066
- 12.25 730 Hraun 3 - umsókn um framlengingu á stöðuleyfi1603068
- 12.26 730 Hjallavegur 5 - Byggingarleyfi1806050
- 12.27 740 Gilsbakki 14 - Byggingarleyfi, skýli, pallar og varmadælur1806138
- 12.28 750 Skólavegur 59 - Byggingarleyfi - Breytingar á 1.hæð1804146
- 12.29 735 Strandgata 39b - Byggingarleyfi, aðstöðuhús1806013
- 12.30 750 Búðavegur 35 - Byggingarleyfi - breyting á skrifsstofu- og verslunarhúsnæði í íbúð1402075
- 12.31 735 Miðdalur 9 - Byggingarleyfi, sólpallur1806007
- 12.32 735 Kirkjuból 2 - byggingarleyfi - sumarhús1804087
- 12.33 730 Hæðargerði 33 - Byggingarleyfi - breyting utanhúss1806048
- 12.34 730 Heiðarvegur 5 -Byggingarleyfi, lagnir og undirstöður1806156