NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 207
27. júní 2018, kl. 16:00 til 18:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Marinó Stefánsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (10)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, aðalmaður
- Ívar Dan Arnarson, aðalmaður
- Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Valur Sveinsson, embættismaður
- Marinó Stefánsson, embættismaður
- Anna Berg Samúelsdóttir, embættismaður
- Þorsteinn Sigurjónsson, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarstjórn, fundur 249 liður 7
Til máls tóku Einar Már Sigurðarson, Jens Garðar Helgason og Jón Björn Hákonarson.
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 207 frá 27. júní 2018, staðfest með 9 atkvæðum.
Bæjarráð, fundur 569 liður 12
Framlögð til umfjöllunar fundargerð eigna-, skipulags-, og umhverfisnefndar nr. 207 frá 27. júní 2018.
Dagskrá
-
1. Almenningssamgöngur Sv-Aust ehf.
Mál 1602039 Allur ferill málsins
Jódís Skúladóttir verkefnastjóri Strætisvögnum Austurlands hjá Austurbrú kom á fundinn og fór yfir verkefnin hjá Strætisvögnum Austurlands.
-
2. Akstur til og frá athafnasvæðinu að Hrauni kl. 20:00
Mál 1607068 Allur ferill málsins
Leiðin er mjög kostnaðarsöm fyrir sveitarfélagið, er því lagt til við bæjarráð að leiðin verði lögð niður í samstarfi aðila eins fljótt og kostur er.
-
3. Aðalskipulag Breiðdalshrepps 2018-2030, umsögn
Mál 1701199 Allur ferill málsins
Lagðar fram til kynningar umsagnar og athugasemdir sem bárust á auglýsingartíma tillögu að Aðalskipulagi Breiðdalshrepps 2018-2030 ásamt umhverfisskýrslu.
-
4. Endurheimtur á votlendi
Mál 1709071 Allur ferill málsins
Samningur Landgræðslunnar við Fjarðabyggð um endurheimt votlendis í landi Hólma og að hluta í landi Kollaleiru lagt fyrir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd. Nefndin samþykkir samninginn fyrir sitt leiti og vísar til afgreiðslu bæjarráðs.
-
5. Garðsláttur
Mál 1806144 Allur ferill málsins
Umhverfisstjóri leggur fyrir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd minnisblað um garðaslátt fyrir eldri borgara og öryrkja. Nefndin felur umhverfisstjóra að vinna að útfærslu á framkvæmd garðasláttar í samráði við félagsþjónustu Fjarðabyggðar og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
6. Nýting vatns úr borholu við Sléttu
Mál 1803148 Allur ferill málsins
Sviðstjóri veitna fer yfir beiðni landeiganda Sléttu, Reyðarfirði að fá að nýta tilraunaborholu, sviðstjóra falið að vinna málið áfram og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
7. Fyrirspurn um raforkukaup
Mál 1806033 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar
-
8. Borholur á Fáskrúðsfirði
Mál 1806056 Allur ferill málsins
Samningur um boranir kaldavatnshola í Fjarðabyggð við VKC ehf lagður fram til kynningar.
-
9. Vatnstjón á Eyrarstíg 1
Mál 1801118 Allur ferill málsins
Þann 12. janúar 2018 flæddi inn í kjallara á húsi á Reyðarfirði sviðstjór veitna kynnti stöðu málsins. Nefndin felur sviðstjóra að vinna áfram að málinu og leggja fyrir að nýju
-
10. Tilkynning um ábyrgðarmann Rafveita Reyðarfjarðar - staðfesting
Mál 1806058 Allur ferill málsins
Lögð fram tilkynning um ábyrgðarmann Rafveitu Reyðarfjarðar og staðfesting Mannvirkjastofnunnar.
-
11. Ljósleiðarakerfi veitna Fáskrúðsfirði
Mál 1806131 Allur ferill málsins
Nefndin samþykkir drög að samningi við Rarik um sameign á ljósleiðarastreng á Fáskrúðsfirði og einnig samkomulag við Loðnuvinnsluna(LVF) um notkun veitna á ljósleiðara LVF fyrir væntanlegt ljósleiðarakerfi veitna.
-
12. Styrkir til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla
Mál 1606146 Allur ferill málsins
Kostnaðaráætlun vegna kaupa og uppsetninga á hleðslustöðvum frá Hlöðu og Orkusölunni. Auk þess styrkur frá Orkusjóði skv. Austurbrú. Veitustjóri leggur til að gerður verði þjónustusamningur við Hlöðu fyrir rekstur stöðvanna, sem verða í eigu Fjarðabyggðar. Samþykkt að gerður verði þjónustusamningur við Hlöðu og settar verði upp stöðvar í Neskaupstað, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Breiðdalsvík. On hefur nú þegar sett upp hraðhleðslustöð á Stöðvarfirði. Endanlegri afgreiðslu vísað til bæjarráðs.
-
13. Forðafræðilíkan - Norðfjaðagöng
Mál 1806136 Allur ferill málsins
Vegagerðin gerði samkomulag við Fjarðabyggð vegna gerð Norðfjarðagangna um athugun á forðafræði jarðhitasvæðisins Hitaveitu Eskifjarðar. Sviðstjóra veitna falið að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir að nýju
-
14. Allt að 21.000 tonna framleiðsla á laxi í Berufirði og Fáskrúðsfirði - beiðni um umsögn
Mál 1709077 Allur ferill málsins
Atvinnu-og þróunarstjóri kynnir og fer yfir framgang málsins. Fjallað um hagsmuni sveitarfélagsins og þær umsagnir sem fram hafa komið.
-
15. 425.mál - til umsagnar frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða,
Mál 1804108 Allur ferill málsins
425.mál - til umsagnar frumvarp til laga um skipulag haf- og strandsvæða, Atvinnu-og þróunarstjóri kynnir fundinum framgöngu málsins.
-
16. Gjöf til Fjarðabyggðar - skíðamiðstöð
Mál 1806114 Allur ferill málsins
Vísað frá bæjarráði til eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar.
Framlagður tölvupóstur frá stjórn SÚN um gjöf samvinnufélagsins til Fjarðabyggðar. Samvinnufélagið hefur ákveðið að gefa yfirbyggt töfrateppi að upphæð 20 milljónir kr. til Skíðamiðstöðvarinnar í Oddsskarði. Jafnframt framlagt minnisblað sviðsstjóra framkvæmda- og umhverfissviðs.
Bæjarráð þakkar velvilja Samvinnufélags útgerðarmanna og vísar erindinu til vinnu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar við útfærslu skipulags svæðisins og fjárhagsáætlunargerðar 2019.
Eigna-, skipulags og umhverfisnefnd felur sviðstjóra að vinna málið áfram í samræmi við umræður á fundinum.
-
17. Framkvæmdir í Breiðdal
Mál 1806134 Allur ferill málsins
Farið yfir þær framkvæmdir sem farið verður í samkvæmt samþykkt um innviða uppbygging á Breiðdalsvík.
-
18. Forkaupsréttur að Strandgötu 82
Mál 1806042 Allur ferill málsins
Lögð fram fyrirspurn Birkis Böðvarssonar fh. eiganda Strandgötu 82 á Eskifirði, dagsett 12. júní 2018, vegna forkaupsréttar Fjarðabyggðar á húsinu sem nú er í söluferli.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að forkaupsréttur verði ekki nýttur.
-
19. Erindisbréf landbúnaðarnefnd
Mál 1806132 Allur ferill málsins
Nefndin gerir ekki athugasemdir við erindisbréfið og vísar því til afgreiðslu bæjarstjórnar.
-
20. Eftirlitsskýrsla - Íþróttahúsið á Reyðarfirði - Sundlaug
Mál 1806011 Allur ferill málsins
Lagt fram til kynningar
-
21. Fjölskyldu-og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði
Mál 1708088 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Hrefnu Eyþórsdóttur fh. áhugahóps um fjölskyldu og útivistarsvæði á Fáskrúðsfirði, dagsett 12. júní 2018, þar sem upplýst er að hópurinn hafi nú fjármagnað kaup á leiktækjum sem fyrirhugað er að setja upp í fjölskyldugarðinum í Skrúðgarinum á Fáskrúðsfirði.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd fagnar framtaksemi áhugahópsins og samþykkir nefndin að greiða flutningskostnað leiktækjanna. Nefndin felur umhverfisstjóra að útfæra með hópnun verkáætlun á uppsetningu tækjanna í samræmi við framtíðarsýn fjölskyldugarðsins.
-
22. 740 Vindheimanaust 8 - Stækkun lóðar
Mál 1806006 Allur ferill málsins
Lagður fram póstur G.Skúlasonar ehf, dagsettur 30. maí 2018, þar sem óskað er eftir að lóð fyrirtækisins að Vindheimanaust 8 á Norðfirð verði stækkuð samkvæmt gildandi deiliskipulagi.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarráðs.
-
23. Umsókn um hluta af lóðar í Neskaupstað
Mál 1805256 Allur ferill málsins
Vísað frá hafnarstjórn til umfjöllunar eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar erindi Fiskmarkaðar Austurlands þar sem óskað er eftir heimild til að nýta hluta lóðar hafnarstjórnar að Naustahvammi 76 á Norðfirð undir húsnæði fiskmarkaðarins. Samþykki hafnarstjórnar vegna erindisins liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að óveruleg breyting verði gerð á deiliskipulagi Naust 1, Norðfjarðarhöfn og nágrenni þannig að gert verði ráð fyrir lóð undir starfsemi fiskmarkaðarins.
-
24. 740 Sæbakki 19 - Umsókn um lóð
Mál 1806066 Allur ferill málsins
Lögð fram lóðarumsókn Brynju Bjargar Vilhjálmsdóttur, dagsett 18. júní 2018, þar sem sótt er um lóðina við Sæbakka 19 undir einbýlishús.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir, fyrir sitt leyti, að úthluta lóðinni og vísar umsókninni til bæjarráðs til endanlegrar afgreiðslu.
-
25. 730 Hraun 3 - umsókn um framlengingu á stöðuleyfi
Mál 1603068 Allur ferill málsins
Lagt fram bréf Magnúsar Helgasonar fh. Launafls ehf, dagsett 12. júní 2018, Þar sem sótt er um framlengingu á stöðuleyfi fyrir gámaeiningar á lóð fyrirtækisins að Hrauni 3.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að óska frekari upplýsinga frá Launafli ehf.
-
26. 730 Hjallavegur 5 - Byggingarleyfi
Mál 1806050 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Önnu Berg Samúelsdóttur, dagsett 14. júní 2018, þar sem sótt er um leyfi til útlitsbreyta húsi hennar að Hjallavegi 5 á Reyðarfirði með því að síkka stofuglugga að gólfi og setja þar rennihurð.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.
-
27. 740 Gilsbakki 14 - Byggingarleyfi, skýli, pallar og varmadælur
Mál 1806138 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Grétars Arnar Sigfinnssonar, dagsett 22. júní 2018, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 40 m2 sólpall með skyggni yfir við bílskúr og 25 m2 sólpall með 1,8 m skjólgirðingu og heitum potti við húss hans að Gilsbakka 14 á Norðfirði. Þá er gert ráð fyrir varmadælum á bílskúr og íbúðarhús.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.
-
28. 750 Skólavegur 59 - Byggingarleyfi - Breytingar á 1.hæð
Mál 1804146 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Kaupfélags Fáskrúðsfirðinga svf, dagsett 27. apríl 2018, þar sem sótt er um leyfi til að útbúa gististað í flokki II á fyrstu hæð húsnæðis félagsins að skólavegi 59 á Fáskrúðsfirði. Gert er ráð fyrir gististað án veitinga með takmarkaða þjónustu. Gerð verða fjórtán herbergi með möguleika fyrir allt að 28 rúmum. Aðalhönnuður er Elís B. Eirkíksson.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.
-
29. 735 Strandgata 39b - Byggingarleyfi, aðstöðuhús
Mál 1806013 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn hafnarsjóðs Fjarðabyggðar, dagsett 4. júní 2018, þar sem óskað er eftir samþykki á byggingaráformum vegna 54 m2 og 110,9 m3 aðstöðuhúsi sem staðsett yrði á Útkaupsstaðartúni á Eskifirði. Húsið er hugsað sem aðstöðuhús fyrir ferðamenn og þá sérstaklega þá sem koma með skemmtiferðaskipum til Eskifjarðar. Aðalhönnuður er Þórhallur Pálsson
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd frestar afgreiðslu
-
30. 750 Búðavegur 35 - Byggingarleyfi - breyting á skrifsstofu- og verslunarhúsnæði í íbúð
Mál 1402075 Allur ferill málsins
Lagður fram til kynningar úrskurður úrskurðanefndar umhverfis- og auðlindamála vegna kæru eiganda varðandi afturköllun á leyfi fyrir breyttri skráningu matshluta 0201 að Búðavegi 35 á Fáskrúðsfirði. Málinu var vísað frá úrskurðanefndinni.
-
31. 735 Miðdalur 9 - Byggingarleyfi, sólpallur
Mál 1806007 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Bjarna Kristjánssonar, dagsett 1. júní 2018, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 60 m2 sólpall við húss hans að Miðdal 9 á Eskifirði. Samþykki annara eiganda liggur fyrir.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.
-
32. 735 Kirkjuból 2 - byggingarleyfi - sumarhús
Mál 1804087 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Elíasar Jónssonar, dagsett 17. apríl 2018, þar sem sótt er um leyfi til að byggja 31,7 m2 og 112.7 m3 sumarhús að Kirkjubóli 2 í Vaðlavík. Húsið var byggt 1997 en hefur verið óskráð fram að þessu. Aðalhönnuður er Steindór Stefánsson.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.
-
33. 730 Hæðargerði 33 - Byggingarleyfi - breyting utanhúss
Mál 1806048 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Guðbjargar M. Kristjánsdóttur, dagsett 14. júní 2018, þar sem sótt er um leyfi til að stækka þvottahús og útlitsbreyta húsi hennar að Hæðargerði 33 á Reyðarfirði. Aðalhönnuður er Steindór Stefánsson.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.
-
34. 730 Heiðarvegur 5 -Byggingarleyfi, lagnir og undirstöður
Mál 1806156 Allur ferill málsins
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Fjarðabyggðar, dagsett 26. júní 2018, þar sem sótt er um leyfi til að steypa undirstöður og gólfplötu Leiksólans Lyngholts vegna stækkunar anddyris ásamt lögnum úr sal og fituskilju.
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.