NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 206
13. júní 2018, kl. 16:00 til 00:00, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.
Fundarmenn samkvæmt fundargerð (7)
Fundinn sátu
- Einar Már Sigurðarson, formaður
- Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
- Esther Ösp Gunnarsdóttir, aðalmaður
- Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, varaformaður
- Ívar Dan Arnarson, aðalmaður
Starfsmenn
- Anna Berg Samúelsdóttir, embættismaður
- Ragna Dagbjört Davíðsdóttir, embættismaður
Þessi fundargerð á öðrum fundum
Bæjarráð, fundur 567 liður 49
Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 206 frá 13.júní 2018, lögð fram til kynningar.
Bæjarstjórn, fundur 248 liður 2
Enginn tók til máls.
Fundargerð eigna skipulags- og umhverfisnefndar frá 13.júní sl. staðfest með 9 atkvæðum.
Dagskrá
-
1. Erindisbréf eigna-,skipulags- og umhverfisnefndar
Mál 1805115 Allur ferill málsins
Nefndin gerir ekki athugasemdir við erindisbréfið og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs.
-
2. Gjaldskrá fyrir meðhöndlun úrgangs 2018
Mál 1709221 Allur ferill málsins
Nefndin felur verkefnisstjóra umhverfismála að vinna áfram að málinu í ljósi umræðna á fundinum.
-
3. Meindýraeyðing í Nípunni
Mál 1805032 Allur ferill málsins
Nefndin samþykkir að leyfa veiðar á bæði ref og mink í Fólkvangi Neskaupstaðar með sama fyrirkomulagi og undanfarin ár, þar sem m.a. er tekið tillit til þess að svæðið er friðað útivistarsvæði og umferð fólks þar tíð.
-
4. Endurskoðun fjallskilasamþykktar Múlasýslna
Mál 1805068 Allur ferill málsins
Til kynningar mál er varðar endurskoðun fjallskilasamþykktar Múlasýslna. Málinu vísað til kynningar í landbúnaðarnefnd.
-
5. Umhverfisstefna Fjarðabyggðar
Mál 1704067 Allur ferill málsins
Umhverfisstjóri lagði fyrir eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd drög að umhverfisstefnu Fjarðabyggðar 2018-2021. Nefndin felur umhverfisstjóra að vinna stefnuna samkvæmt þeim ábendingum sem fram komu á fundinum og leggja fyrir nefndina að nýju.
-
6. Beiðni um umsögn - Allt að 520.000 m3 efnistaka við Eyri í Reyðarfirði
Mál 1805233 Allur ferill málsins
Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerir engar athugasemdir við frummatsskýrlu á efnisnámi við Eyri á allt að 520.000 m3 efnis utan netlagna við Eyri í Reyðarfirði. Skipulags- og byggingarfulltrúa er falið að ganga frá umsögn til Skipulagsstofnunar.
-
7. Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlitsins 2017
Mál 1805241 Allur ferill málsins
Ársskýrsla Heilbrigðiseftirlits Austurlands fyrir árið 2017 lögð fram til kynningar.
-
8. Uppkaup fasteigna
Mál 1806046 Allur ferill málsins
Fært í trúnaðarmálabók.