Beint í efni
Hnotskurninn

NefndirEigna-, skipulags- og umhverfisnefnd

Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd, fundur 208

9. júlí 2018, kl. 16:00 til 19:10, í fundarsal á bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Fundargerð ritaði Valur Sveinsson.

Fundarmenn samkvæmt fundargerð (6)

Fundinn sátu

  • Einar Már Sigurðarson, formaður
  • Ragnar Sigurðsson, aðalmaður
  • Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, varaformaður
  • Ívar Dan Arnarson, aðalmaður
  • Árni Björn Guðmundarson, áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Valur Sveinsson, embættismaður

Þessi fundargerð á öðrum fundum

  • Bæjarráð, fundur 571 liður 47

    Fundargerð eigna- skipulags- og umhverfisnefndar, nr. 208 frá 9.júlí 2018, samþykkt samhljóða í umboði bæjarstjórnar.

Dagskrá

  1. 1. Aðalskipulag Breiðdalshrepps 2018-2030, umsögn

    Mál 1701199 Allur ferill málsins

    Auglýsingartíma vegna Aðalskipulag Breiðdalshrepps 2018-2030 er lokið. Athugasemdir bárust frá átta einstaklingum og umsagnaraðilum. Lögð fram umsögn vegna athugasemda og tillaga að afgreiðslu, dagsett 9. júlí 2018.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að greinagerð og uppdrætti verði breytt í samræmi við tillögu. Um er að ræða minniháttar breytingar og lagfæringar sem ekki eiga við megin atriði aðalskipulagsins. Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir Aðalskipulag Breiðdalshrepps 2018-2030 fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarstjórnar.

  2. 2. Styrkir til uppbyggingar á innviðum fyrir rafbíla

    Mál 1606146 Allur ferill málsins

    Lagðar fram tilögur veitustjóra um staðsetningu hleðslustöðva fyrir rafbíla á Breiðdalsvík, Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði, Eskifirði og Neskaupstað.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir staðsetningar hleðslustöðva fyrir rafbíla á Reyðarfirði við Hafnargötu 2, á Eskifirði austan við Valhöll og í Neskaupstað á bílastæði neðan Hafnarbrautar á móts við gangbraut milli Hafnarbrautar 2 og 4. Veitustjóra falið að útfæra nánar staðsetningar á Fáskrúðsfirði og Breiðdalsvík og leggja fyrir nefndina að nýju.

  3. 3. Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008 - 2028, breyting á legu Kröflulínu 3

    Mál 1805012 Allur ferill málsins

    Lögð fram til kynningar, fyrir auglýsingu, tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Fljótsdalshéraðs 2008-2028 vegna Kröflulínu 3.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

  4. 4. 740 Deiliskipulag Naust 1 - Breyting við Landanaust

    Mál 1805043 Allur ferill málsins

    Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Naust 1, breyting við Landanaust, dagsett 5. júlí 2018.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir breytinguna fyrir sitt leyti og vísar endanlegri afgreiðslu til bæjarstjórnar.

  5. 5. 735 Langidalur 11 - fyrirspurn um stækkun á bílskúr

    Mál 1807018 Allur ferill málsins

    Lagt fram ódagsett bréf Guðna Þórs Elíssonar þar sem leitað er eftir afstöðu eigna-, skipulags- og umhverfisnefndar á stækkun á bílskúr á húsi hans að Langadal 11 á Eskifirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd getur ekki fallist á að bílskúr verði stækkaður vegna göngustígs milli lóða Langadals og Skammadals.

  6. 6. 740 Egilsbraut 19 - byggingarleyfi

    Mál 1804002 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Þorfinns S. Hermannssonar, dagsett 1. apríl 2018, þar sem sótt er um leyfi til að breyta rishæð í íbúð með kvisti í húsnæði hans að Egilsbraut 19 á Norðfirði. Aðalhönnuður er Steindór Stefánsson.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir byggingaráformin og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.

  7. 7. 750 Búðavegur 37a - Byggingarleyfi -breyting utan húss

    Mál 1806043 Allur ferill málsins

    Lögð fram byggingarleyfisumsókn Lukasz Wisniewski, dagsett 13. júní 2018, þar sem sótt er um leyfi til að laga þak og einangra og klæða að utan hús hans að Búðavegi 37a á Fáskrúðsfirði. Umsögn Minjastofnunar liggur fyrir.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að tilkynna umsækjanda um afgreiðslu nefndarinnar.

  8. 8. Umsókn um að setja ærslabelg við tjaldstæðið á Norðfirði

    Mál 1807008 Allur ferill málsins

    Lagður fram póstur Kristínar Hávarðardóttur fh. Þróttar, dagsettur 1. júlí 2018, þar sem óskað er eftir heimild til að staðsetja ærslabelg við tjaldsvæðið ofan byggðarinnar á Norðfirði.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina og felur umhverfisstjóra að útfæra nánar staðsetningu ærslabelgs á svæði A.

  9. 9. Umsókn um að setja ærslabelg innan lóðar Grunnskólanns á Reyðarfirði

    Mál 1807007 Allur ferill málsins

    Lagður fram póstur Jóns Ólafs Eiðssonar fh. Foreldrafélags Grunnskóla Reyðarfjarðar, dagsettur 2. júlí 2018, þar sem óskað er eftir heimild til að staðsetja ærslabelg innan lóðar Grunnskóla Reyðarfjarðar. Samþykki skólastjórnanda liggur fyrir.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir umsóknina.

  10. 10. 730 Eyri - Efnistaka

    Mál 1806182 Allur ferill málsins

    Lagður fram póstur Vegagerðarinnar þar sem óskað er eftir efnistökuheimild úr námu E9 við Eyri í Reyðarfirði. Reiknað er með 6-800 m3 efnistöku sem verður ekið út sem slitlagi í vegi jafnóðum. Samþykki landeiganda liggur fyrir.

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir efnistökuna.

  11. 11. Erindi Síldarvinnslunnar

    Mál 1806180 Allur ferill málsins

  12. 12. Nefndaskipan í Fjarðabyggð 2018 - 2022

    Mál 1806029 Allur ferill málsins

    Eigna-, skipulags- og umhverfisnefnd skipar eftirfarandi aðila í landbúnaðarnefnd kjörtímabilið 2018 til 2022.

    Aðalmenn:

    Sigurður Baldursson, formaður og fjallskilastjóri, Ármann Elísson, varafjallskilastjóri, Sigurður Borgar Arnaldsson, Marsibil Erlendsdóttir, Gunnlaugur Ingólfsson.

    Til vara: Guðný Harðardóttir, Halldór Jóhannsson, Þórhalla Ágústdóttir, Þuríður Lillý Sigurðardóttir og Steinn Björnsson